Rannsaka talsmáta siðlausra morðingja til þess að góma raðmorðingja 24. október 2011 22:00 "Hello Clarice“.Persónan Hannibal Lecter var mikið fyrir samræðulistina og þótti nokkuð sannfærandi sem geðsjúkur raðmorðingi.
Rannsóknarteymi við Cornell háskólann í Bandaríkjunum rannsakar nú talsmáta geðsjúkra morðingja. Teymið ræddi við 52 morðingja en 14 af þeim voru siðlausir geðsjúklingar. Tölva greindi svo talsmáta morðingjanna og kom í ljós að hinir geðsjúku töluðu öðruvísi en hinir. Allir morðingjarnir voru beðnir um að lýsa ódæðisverkum sínum og komust þá vísindamenn að þeirri athyglisverðu niðurstöðu að hinir geðsjúku lýstu morðum sínum öðruvísi. Þeir lýstu atburðinum á mjög kalda vegu. Þannig lýstu þeir morðunum sem orsök og afleiðingu ákveðins atburðar. Að auki einblíndu þeir mun frekar á einfaldari þarfir eins og mat, drykk og peninga. Þá komst sérfræðiteymið einnig að því að hinir siðlausu morðingjar notuðu hikorð meira en þeir sem ekki greindust siðlausir. Jeffrey Hancock, sem leiddi rannsóknina, útskýrði að fólk notar yfirleitt biðorð þegar það er að hugsa næstu setningu. Í tilfelli siðlausu morðingjanna þá virtust þeir nota hikorðin frekar til þess að líkja eftir talsmáta andlega heils manns. Þá veittu vísindamenn því athygli að geðsjúku morðingjarnarnir notuðu mun oftar þátíð þegar þeir lýstu glæpum sínum. Vísindamenn telja að þannig fjarlægi hinn siðlausi morðingi sig tilfinningalega frá því sem hann gerði. Morðingjarnir notuðu einnig orðin „vegna þess" (because) og „þannig að" (so that) mun oftar en aðrir morðingjar. Það gefur hugsanlega til kynna að morðingjarnir líti svo á að ódæðin séu rökrétt niðurstaða í einhverskonar áætlun. Svo mátti greina mikinn mun á geðsjúku morðingjunum og hinum varðandi andleg málefni. Hinir geðsjúku veltu slíku almennt ekki fyrir sér. Rannsóknir vísindamannanna eru ekki síst athyglisverðar í ljósi þess að menn vonast til þess að geta beitt þeim í leitinni að Long Island-raðmorðingjanum. Hann hefur nálgast fórnarlömbin sín í gegnum vefinn Craiglist. Gangi kenningar vísindamannanna eftir, þá er hægt að greina skilaboð frá siðlausum morðingjum með því að skoða orðfærið í textanum. Og þannig góma hinn seka. Hægt er að fræðast frekar um málið hér.
Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Deilt um ábyrgð leigjenda á pinnahælaförum í parketi Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Innlent Fleiri fréttir Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Sjá meira