Rætt við Evra um ásakanirnar í dag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. október 2011 09:30 Nordic Photos / Getty Images
Enska blaðið The Guardian greinir frá því að fulltrúar enska knattspyrnusambandsins munu í dag hitta Patrice Evra, leikmanna Manchester United, og ræða við hann um ásakanirnar á hendur Luis Suarez, leikmann Liverpool. Eftir leik liðanna um síðustu helgi sakaði Evra Suarez um að hafa beitt sig ítrekað kynþáttaníði í leiknum. Því hefur Suarez staðfastlega neitað en báðir leikmenn njóta stuðnings félaga sinna í málinu. Það virðist þó sífellt ólíklegra að Suarez verði kærður fyrir meint brot, að því sem kemur fram í frétt The Guardian. Orð standa gegn orði og Evra verður helst að finna vitni sem styðja frásögn hans. Það vinnur einnig gegn Evra að hann kvartaði ekki undan framkomu Suarez við Andre Mariner, dómara, á meðan leiknum stóð. Hann vakti fyrst máls á þessu í viðtali við franska sjónvarpsstöð eftir leikinn. Suarez fór einnig með knattspyrnustjóranum Sir Alex Ferguson á fund Mariner stuttu síðar og var greint frá því í leikskýrslu þess síðastnefnda. Það er einnig talið líklegt að enska sambandið muni ekki yfirheyra Suarez vegna málsins, ef það eru engin vitni sem geta stutt staðhæfingar Evra.
Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Fótbolti Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fleiri fréttir „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Sjá meira