Fótbolti

Iniesta ánægður með slagsmálin í leik Spánar og Síle

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Spánverjinn Andres Iniesta segir að slagsmálin í leik Spánar og Síle í gær undirstriki hversu sterk liðsheildin sé hjá spænska landsliðinu.

"Slagsmálin sýna að við erum lið. Það standa allir saman," sagði Iniesta en Spánverjar unnu leikinn 3-2 eftir að hafa lent 2-0 undir.

"Við vorum að spila við sterkt lið sem lék sinn besta bolta. Við brugðumst á réttan hátt við mótlætinu.

Spánverjar mæta Liechtenstein í undankeppni EM eftir helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×