Leikur í Mexíkó stöðvaður vegna skotárásar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. ágúst 2011 23:45
Stöðva þurfti viðureign Santos Laguna og Monarcas Morlia í efstu deildinni í Mexíkó á laugardag vegna skotárásar utan við leikvanginn. Komið var fram á 40. mínútu og leikurinn enn markalaus þegar dómari leiksins flautaði og leikmenn forðuðu sér eins hratt og þeir gátu af vellinum. Atburðinn má sjá eftir 18 sekúndur í myndbandinu í spilaranum hér að ofan. Leikmenn voru ekki þeir einu sem óttuðust um öryggi sitt því tuttugu þúsund áhorfendum stóð ekki á sama og fóru margir hverjir á fjóra fætur í stúkunni. Einn öryggisvörður slasaðist í skotárásinni. Að sögn BBC fréttastofunnar var skotið í átt að öryggisvörðum fyrir utan leikvanginn. Yfirvöld í borginni Torreon, þar sem leikurinn fór fram, segja skotárásina hafa hafist þegar vopnaðir menn í þremur bifreiðum, virtu boð lögreglumanna um að stöðva bifreiðina að vettugi. Alejandro Irarragorri, stjórnarformaður heimaliðsins Santos, fór út á völlinn og ræddi við áhorfendur að skothríðinni lokinni. „Við hjá Santos erum miður okkar yfir atburðum sem þessum sem við þurfum að lifa við. Því miður þarf að fresta leiknum af augljósum ástæðum. Við munum reyna að ná tökum á atburðum sem þessum. Við erum sárir fyrir hönd Morelia, dómaranna og annarra gesta," sagði Irarragorri. Skotárásir á götum úti eru ekki óalgengar í Norður-Mexíkó þar sem gengi berjast um yfirráðasvæði til sölu á eiturlyfjum. Yfir 35 þúsund manns hafa látið lífið vegna ofbeldis sem á rætur sínar að rekja til eiturlyfja síðastliðin fimm ár. Fresta þurfti hafnarboltaleik í Norður-Mexíkó á síðasta ári af sömu ástæðu.
Fótbolti Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Crystal Palace - Rayo Vallecano | Úrslitaleikur Sambandsdeildarinnar Ederson nálgast Manchester United Fyrirliðinn braut hjörtu Hearts Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Stórlið slást um Gordon Schmeichel neyðist til að hætta vegna meiðsla Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Nuno verður áfram stjóri West Ham Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför HM-hetja mun stýra Alberti „Restin var bara ekki með“ „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Rodri ekki meira með KA í ár Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Sjá meira