Fótbolti

Sjáðu stórglæsilegt mark Jóhanns Bergs

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jóhann Berg í leik með AZ Alkmaar.
Jóhann Berg í leik með AZ Alkmaar. Nordic Photos / Getty Images
Jóhann Berg Guðmundsson skoraði stórglæsilegt mark fyrir lið sitt, AZ Alkmaar, er liðið vann 3-0 sigur á Groningen í hollensku úrvalsdeildinni í dag.

Jóhann Berg kom inn á sem varamaður í hálfleik og hann nýtti tækifærið vel. Um miðbik hálfleiksins fékk hann boltann á eigin vallarhelmingi, brunaði upp völlinn og skoraði með þrumufleyg utan vítateigs.

Sjón er sögu ríkari en markið má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×