Vesen í gríska boltanum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. ágúst 2011 16:30 Eiður Smári lék ekki helgina. Mynd. / Heimasíða AEK
Fresta þurfti þremur af átta leikjum fyrstu umferðar gríska boltans um helgina. Ástæðan er sú að þrjú af liðunum sextán í grísku deildinni hafa ekki enn fengið grænt ljós á þátttöku sína. Hagræðing úrslita er stórt vandamál í gríska boltanum og hafa rúmlega 80 manns verið ákærðir til lögreglu af þeim völdum. Meðal annarra eru Makis Psomiadis, eigandi Kavala og Achilleas Beos, forseti Olympiakos Volos, sem voru dæmdir í lífstíðarbann frá afskiptum að knattspyrnu. Félögin tvö, Kavala og Volos, eru meðal þeirra sem hefðu átt að spila um helgina en EEA, íþróttamálanefnd í Grikklandi, úrskurðaði í síðustu viku að félögin yrðu felld niður í 4. deild þar sem þau hafa ekki skorið á tengsl sín við umrædda eigendur. Nefndin á þó eftir að gefa grænt ljós á þátttöku Doxa Dramas og Levadiakos, félaganna sem taka eiga sæti þeirra í efstu deild. Volos og Kavala hafa hins vegar ekki gefið upp alla von og fengu á föstudag lögbann á þátttöku Dramas og Levadiakos í sinn stað. EEA-nefndin hefur því ekki tök á að ganga frá þátttöku nýju félaganna í bili. Til að flækja málin enn frekar fyrir skipuleggjendur grísku deildarinnar hefur Iraklis, sem var fært niður um deild fyrir skjalafölsun þrátt fyrir að bjarga sér frá falli á lokadegi síðasta tímabils, unnið áfrýjun hjá gríska knattspyrnusambandinu. Félagið spilar því áfram í efstu deild eftir allt saman og Asteras Tripolis, sem halda átti sæti sínu í deildinni í stað Iraklis, fer niður í næstefstu deild. Meistarar Olympiakos áttu að spila gegn Kavala um helgina en gátu ekki hafið titilvörn sína af ofangreindum ástæðum. Sömu sögu er að segja um AEK, lið Eiðs Smára Guðjohnsen og Elfars Freys Helgasonar, sem átti að leika gegn Volos. Panathinaikos hóf hins vegar tímabilið með 2-0 útisigri á Kerkyra.
Fótbolti Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Fleiri fréttir Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal | Meistararnir í Birmingham Breiðablik - Stjarnan | Grannaslagur í Kópavogi Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig Sjá meira