Erlent

Sumarsólstöðuhátíð við Stonehenge

Mynd/AP
Um átján þúsund manns söfnuðust í morgun saman við Stonehenge mannvirkið heimsfræga í Suður-Englandi til þess að fylgjast með sólinni rísa á þessum lengsta degi ársins.

Þrátt fyrir að flestir hátíðargesta hafi verið friðsælir og notið sólarupprásarinnar, greindi lögreglan á svæðinu frá 50 fíkniefnamálum og 20 handtökum.

Færri mættu á atburðinn í dag en verið hefur síðustu ár, en það tók sólina rúma tvo tíma að brjótast í gegnum skýin eftir hina eiginlegu sólarupprás.

Mynd/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×