Erlent

Jarðskjálfti í Japan - varað við flóðbylgju

Frá hamförunum í mars.
Frá hamförunum í mars. Mynd/AFP
Flóðbylgjuviðvörun var gefin út í Japan í kvöld eftir að jarðskjálfti mældist 6,7 að styrkleika undan austurströnd eyjarinnar Honshu nú í kvöld. Engar fréttir hafa borist af manntjóni eða skemmdum.

Samkvæmt fréttastofu AFP voru upptök skjálftans tuttugu kílómetra undir hafsbotni um fimmtíu kílómetra austur af borginni Miyako.

Í mars síðastliðnum skall flóðbylgja á eyjuna og fórust yfir 23 þúsund manns í hamförunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×