Erlent

Oprah fær heiðurs-doktorsgráðu

Oprah tók á móti heiðurs-doktorsgráðu í Bloemfontein í Suður-Afríku í dag.
Oprah tók á móti heiðurs-doktorsgráðu í Bloemfontein í Suður-Afríku í dag. Mynd/AP
Spjallþáttastjórnandinn heimsþekkti Oprah Winfrey er nú stoltur handhafi heiðurs-doktorsgráðu frá suður-afríska háskólanum University of the Free Stateen rúmlega fjögur þúsund manns fylgdust með afhendingu viðurkenningarinnar í Bloemfontein.

Þetta er þó ekki í fyrsta skiptið sem Winfrey tekur á móti slíkri viðurkenningu því sjónvarpsstjörnunni hafa þegar verið veittar heiðurs-doktorsgráður frá öðrum háskólum á borð við Duke og Princeton, svo dæmi séu nefnd.

Suður-afríski háskólinn í Bloemfontein sagði gráðuna vera viðurkenningu á ómælanlegu framlagi Winfrey til heimsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×