Um 35 þúsund börn á flótta í Súdan 1. júní 2011 09:11 Mynd/AP
Aukin átök í Súdan hafa hrakið tæplega 35 þúsund börn brott frá heimilum sínum undanfarnar tvær vikur. Þetta er mat Barnaheilla – Save the Children sem vara við því að mörg þeirra barna sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar, eigi mjög á hættu að verða fyrir alvarlegu andlegu áfalli og misnotkun. Nær allir íbúar Abyei-bæjar hafa flúið skothríð, eldsvoða og gripdeildir. Óttast er að átökin á milli liðsmanna Norður- og Suður-Súdan eigi eftir að breiðast enn frekar út. Börn á flótta standa frammi fyrir margvíslegum hættum, svo sem að dragast inn í átök eða verða vitni að hryllilegum atburðum. Barnaheill – Save the Children óttast að börn, sem orðið hafa viðskila við foreldra sína og eru ráðvillt og hrædd, verði auðveld fórnarlömb kynferðislegrar og líkamlegrar misnotkunar eða að þau verði þvinguð til herstarfa. Því lengur sem átökin vara, þeim mun meiri er hættan fyrir börnin. Þessi nýi straumur flóttamanna nú bætist við þá mannúðarkreppu sem ríkt hefur í Suður-Súdan, þar sem margt fátækasta fólk heimsins býr. Á síðustu mánuðum hafa hundruðir þúsunda íbúa úr suðri, sem búsettir voru í Norður-Súdan, snúið aftur heim til lands forfeðra sinna, í tæka tíð fyrir hina opinberu tilkynningu um sjálfstæði Suður-Súdan 9. júlí næst komandi. Enn búa um 1,5 milljónir íbúa frá Suður-Súdan í norðrinu og leiða má að því líkum að margir þeirra muni snúa til baka til heimalandins á næstu mánuðum. Það mun auka álagið á ríkisstjórnina, sem þegar berst í bökkum, og hjálparsamtök að mæta þörfum þeirra.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán