Erlent

Forsetafrúin er feykistælt

Óli Tynes skrifar
Michelle Obama kennir sveifluna.
Michelle Obama kennir sveifluna.
Michelle Obama er orðin fyrirmynd Bandaríkjamanna á öllum aldri sem vilja líta vel út. Hún lagði raunar upp með það verkefni að minnka offitu meðal barna, en það hefur hlaðið utan á sig, ef svo má að orði komast í frétt sem fjallar um fitu.

 

Forsetafrúin gengur á undan með góðu fordæmi. Í dag tók hún til dæmis æfingar í garði Hvíta hússins með hópi ungmenna. Sér til stuðnings hafði hún einkaþjálfara sinn sem gaf hverjum og einum góð ráð. Michelle Obama lætur ekki nægja að leika sér í garði Hvíta hússins. Hún heimsækir einnig skóla og ráðstefnur til að hvetja til heilbrigðara lífernis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×