Obama gerði stólpagrín að Trump 1. maí 2011 17:25 Donald Trump.
Auðkýfingurinn og raunveruleikastjarnan - og nú síðast hugsanlegt forsetaefni Repúblikanaflokksins - Donald Trump, átti frekar erfitt gærkvöld. Hann var staddur í kvöldverðaboði á vegum helstu dagblaða Bandaríkjanna. Heiðursgesturinn var forseti landsins, Barack Obama. Hann gerði stólpagrín af Trump. Auðkýfingurinn hefur verið mikið í fréttunum vestan hafs undanfarið þar sem hann hélt því fram að Obama væri ekki fæddur í Bandaríkjunum, heldur í Kenýa. Það hefði þýtt að Obama væri ekki kjörgengur sem forseti. Obama sá sig því knúinn til þess að opinbera fæðingavottorð sitt sem sýnir að hann hafi fæðst á Hawaí. Obama skaut föstum skotum á hugsanlegan andstæðing sinn í forsetakosningunum á næsta ári. Þar sagði Obama meðal annars að hann hefði horft á raunveruleikaþáttinn „Lærlingurinn" (e.The apprantice) sem Trump sér um. Obama sagðist heillaður af því hvernig hann greindi kjarna vandamáls lærlinga sinna og rak þann úr þættinum sem raunverulega átti sökina. Obama bætti svo við: „Þetta eru svipaðar áhyggjur og halda mér vakandi á nóttinni. Vel gert herra, vel gert." Eftir að Obama lauk máli sínu tók Seth Meyers, sem var kynnir kvöldsins, við gríninu. Hann gerði stólpagrín að Trump en þegar sjónvarpsvélum var beint að auðkýfingnum sást að honum stökk ekki bros á vör alla ræðuna. Reyndar er sjón sögu ríkari.Hér er ræða forsetans.Hér er ræða Seths, en þar er einnig að finna viðbrögð, eða viðbragðsleysi Trumps öllu heldur.
Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Innlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Hitnar undir feldi Péturs Innlent Fleiri fréttir Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Sór embættiseiðinn á niðurlagðri neðanjarðarlestarstöð Kirkja í Amsterdam alelda Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Sjá meira