Bjartsýnir á nýjan kjarasamning í dag 4. maí 2011 07:22
Skriður komst á kjaraviðræður í gærdag og var fundað í flestum herbergjum í húsakynnum Ríkissáttasemjara fram til miðnættis. Menn voru bjartsýnir á að hægt verði að skrifa undir nýja kjarasamninga eftir hádegi í dag, en fundir hefjast á ný klukkan eitt. Stefnt er að þriggja ára samningi með forsenduákvæðum sem snúa að ríkisstjórninni. Gangi þær forsendur ekki eftir fyrir júní lok verður um árs samning að ræða. Fulltrúar stjórnvalda komu til Ríkissáttasemjara um klukkan ellefu í gærkvöldi en höfðu fátt nýtt fram að færa að mati samningamanna. Í þeim drögum sem rædd hafa verið hingað til er gert ráð fyrir að launafólk fái 50 þúsund króna eingreiðslu við undirritun samninga. Þá hafði áður verið rætt um að laun hækkuðu um tíu prósent á þriggja ára samningstímabili og á samningstímanum hækkuðu lágmarkslaun upp í 200 þúsund krónur. Þetta dugði forystu verkalýðshreyfingarinnar ekki lengur í gær og buðu Samtök atvinnulífsins þá eitt prósentustig til viðbótar. Það kemur í ljós við undirritun samninga í dag, hvort það varð niðurstaðan í gærkvöldi eða hvort verkalýðsforystunni tókst að knýja fram enn meiri hækkun. Ef aðilar vinnumarkaðarins eru sáttir við aðgerðir stjórnvalda í tengslum við samninga í lok júni ná samningarnir til þriggja ára annars verður um eins árs samning að ræða. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að halda auka ríkisstjórnarfund á morgun þar sem reyna á að afgreiða frumvarp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða til þingflokka. Frumvarpið ræður miklu um það hvernig Samtök atvinnulífsins meta stöðu mála, en einnig skiptir miklu máli fyrir aðila beggja megin samningaborðsins hvernig tekst til að auka atvinnu og hagvöxt með aðgerðum stjórnvalda.
Mest lesið „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Innlent „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Fleiri fréttir Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní Sjá meira