Búist við að Obama tilkynni um kosningaherferð sína eftir helgi 3. apríl 2011 06:00 Barack Obama er ekkert að tvínóna við hlutina. Kosningaherferðin hefst á mánudaginn.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun tilkynna formlega á mánudaginn að kosningaherferð hans sé hafin. Í kjölfarið mun hann halda röð áberandi fjáröflunarsamkomna til þess að safna fé í baráttu sína. Það var The Wall Street Journal sem greindi frá þessu í dag en fregnirnar hafa farið nokkuð öfugt ofan í samflokksmenn hans í Demókrataflokknum, en forsetinn á í deilum við þingflokk Repúblikana, um fjárlög næsta árs, og óttast demókratar að barátta hans gæti mótast af þeim átökum. Repúblikana nýttu einnig tækifærið til þess að hnýta í forsetann og sögðu hann of upptekinn af því að vera endurkjörinn til þess að huga að fjárhagi Bandaríkjanna. Þannig gagnrýnir einn af talsmönnum Repúblikanaflokksins Obama fyrir að einbeita sér að endurkjöri á meðan milljónir Bandaríkjamanna eru atvinnulausir og versta efnahagskreppa seinni ára blasir við þjóðinni. Starfsmenn Hvíta hússins fullyrða hinsvegar að tímatafla forsetans verði ekki einokuð af kosningabaráttunni. Líklegt þykir að forsetinn muni ekki spýta almennilega í lófana fyrr í vor þegar Repúblikanaflokkurinn tilkynnir formlega forsetaefni sitt. Þrátt fyrir að Obama verði fyrstu til þess að tilkynna formlega um upphaf kosningabaráttunnar þá eru nokkrir kandídatar Repúblikanaflokksins þegar byrjaðir að safna fé með það að markmiði að flokkurinn útnefni þá sem forsetaefni. Sá sem er lengst komin í söfnuninni er Tim Pawlenty, fyrrverandi fylkisstjóri Minnesota. Kosningarnar fara fram seinni hluta árs 2012 en kosningabaráttan er yfirleitt mjög löng og ströng þar í landi.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Knapi datt af baki Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Sjá meira