Mótorhjólagengin fylla dönsk fangelsi 30. mars 2011 08:45
Meðlimir mótorhjólagengja í Danmörku fylla nú fangelsin svo horfir til vandræða. Danska lögreglan hefur síðustu misserin hert aðgerðir sínar gegn mótorhjólagengjum á borð við Vítisengla, Bandidos og Outlaws og nú er svo komið að 320 meðlimir gengjanna sitja á bak við lás og slá. Þetta þýðir að fangelsin eru að verða yfirfull sem skapar álag á starfsfólk og á þá fanga sem veikari eru fyrir, að því er fram kemur í frétt danska ríkisútvarpsins. Verst er ástandið á Sjálandi þar sem flestir klíkumeðlimirnir hafa verið vistaðir og segir talsmaður fangavarða á Sjálandi að aðstaðan til að vista þá sé engan vegin fullnægjandi. Í sjálenskum fangelsum er talið að þriðjungur allra fanga hafi tengsl við mótorhjólasamtök. Þeir eru sagðir hafa tekið völdin í fangelsunum og nú er svo komið að fangar sem ekki eru í klíkunum þurfa að borga meðlimunum sérstakt gjald fyrir að fá að framkvæma hversdagslega hluti á borð við að fara í líkamsrækt eða jafnvel á klósettið.
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Fleiri fréttir Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Sjá meira