Stjórnvöld í Líbíu: Fjöldi óbreyttra borgara hafa fallið 22. mars 2011 19:54
Bandarísk herþota brotlenti nærri Benghazi í Líbíu í gærkvöldi en loftárásir héldu áfram í höfuðborg landsins í nótt. Líbísk stjórnvöld fullyrða að fjöldi óbreyttra borgara hafi fallið í árásunum. Deilur hafa risið í röðum bandamanna. Loftárásir héldu áfram í Trípolí höfuðborg landsins þriðju nóttina í röð en fullyrt er að fjöldi óbreyttra borgara hafi fallið í árásunum. „Margir óbreyttir borgarar voru drepnir í nótt. Við bíðum enn eftir opinberum tölum. Mörg skotmarkanna í nótt voru borgaraleg eða hálfhernaðarleg. Það sem er að gerast núna er að bresk stjórnvöld drepa fleiri óbreytta borgara til að vernda óbreytta borgara," segir Moussa Ibrahim, talsmaður ríkisstjórnarinnar. Talsmaður breska hersins er þó á öðru máli og sagði aðgerðirnar ganga vel. Fréttir frá svæðinu í dag hafa einkennst af bandarískri F15 orrustuþotu sem hrapaði til jarðar nærri borginni Bengazi í gærkvöldi. Tveir voru um borð en þeir náðu að skjóta sér út úr vélinni áður en hún brotlenti. Þeir eru nú í höndum bandaríska hersins með minni háttar meiðsli en talið er að vélarbilun hafi komið upp í þotunni. Sky News fréttastöðin slóst í för með uppreisnarmönnum og hitti á óbreytta borgara sem báru herliði Gaddafís ekki vel söguna. „Þeir sögðu: „Ef þið leggið ekki niður vopn munum við drepa fjölda manns í dag." En við höfum engin vopn til að leggja niður," segir Ahmed Wasi íbúi sem flúði þorpið sitt. Deilur hafa einnig risið varðandi hverjir eigi að fara með stjórnina fyrir hönd bandamanna en hingað til hefur það verið nokkuð óljóst og greinilegt að Bandaríkjamenn vilja að önnur ríki leiði aðgerðirnar. Tyrkir eru andvígir því að árásirnar verði á forræði NATO, en Ítalir hafa hinsvegar hótað því að loka flugvöllum sínum fyrir herþotunum fái NATO ekki að ráða för. Þá hafa Þjóðverjar og Rússar gagnrýnt framkvæmd loftárásanna og segir Pútín forsætisráðherra Rússlands að þær minni á krossferðir miðalda.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Vísbendingar um aukna kjörsókn Innlent Fleiri fréttir Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Sjá meira