Maður á íslenskum hesti fann týndan dreng 28. mars 2011 11:35
Mikil leit var gerð í alla nótt að þriggja ára gömlum dreng í Danmörku en hann hljópst á brott frá foreldrum sínum á sunnudagsmorgun á Norður-Jótlandi og kom ekki í leitirnar fyrr en í morgun. Lögreglumenn með leitarhunda og þyrlur höfðu gert dauðaleit að stráknum og flokkar frá heimavarnarliði Danmerkur voru einnig kallaðir til auk þess sem hundruð sjálfboðaliða tóku þátt í leitinni. Það var hinsvegar heimamaður sem var í útreiðartúr á íslenska hestinum sínum sem fann stráksa og amaði ekkert að honum þrátt fyrir að hafa verið einn úti í sólarhring. Ekstrabladet danska segir að ástæða þess að stráksi hljópst á brott hafi verið sú að hann hafði ítrekað rifið sig úr úlpunni sinni. Mamman greip þá til þess ráðs að setja úlpuna öfuga á hann, þannig að rennilásinn var á bakinu á honum. Holger litla ofbauð þessar aðfarir mömmu og ákvað því að stinga af. Þegar hann fannst var hann enn í úlpunni góðu, sem gæti hafa bjargað honum því kalt var um nóttina.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Sjá meira