Píndi fórnarlömbin með söxuðum lauk 13. mars 2011 12:15
Fórnarlömb bandarísks ræningjagengis felldu tár þegar það píndi þau til að afhenda sér verðmæti, enda beittu þeir söxuðum lauk við verkið. Bandarískir dómstólar rétta nú yfir Erick Mejia, en honum er gefið að sök að hafa rænt fé og dópi af eiturlyfjasölum. Mejia þóttist vera lögreglumaður, var með fölsk skilríki og blikkandi ljós á bílnum sínum og stöðvaði eiturlyfjasala á förnum vegi. Hann beitti þá svo ofbeldi ásamt ræningjagengi sínu til að neyða þá til að afhenda sér verðmætin. Gengið barði stundum eiturlyfjasalana, brenndi þá með straujárni, kaffærði þá og notaði tangir til að kreista á þeim eistun. Í að minnsta kosti tveimur tilvikum notuðu mennirnir svo grænmeti til að pína fórnarlömbin, þegar þeir bundu þau niður og stungu höfðinu á þeim inn í poka fullan af niðursöxuðum lauk. Lögregluyfirvöld fullyrða að þannig hafi mönnunum tekist að framkalla köfnunartilfinningu hjá fórnarlömbum sínum, og neytt þau til að afhenda sér fé og eiturlyf. Talið er að maðurinn hafi þannig rænt yfir 30 kílóum af kókaíni og andvirði meira en fimmtán milljóna í reiðufé í þessum tveimur tilfellum. Talið er að ræningjagengið beri ábyrgð á yfir hundrað ránum og ofbeldisverkum víðsvegar um Bandaríkin, meðal annars með fulltingi lögreglumanns.
Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Fleiri fréttir Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Sjá meira