Lið Kára á leið í greiðslustöðvun - missa tíu stig og fara á botninn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. febrúar 2011 16:30 Kári Árnason. Mynd/Nordic Photos/Getty
Plymouth, lið Kára Árnasonar, steig stórt skref í átt að greiðslustöðvun með því að tilkynna um ráðningu skiptastjóra í dag en hann á að aðstoða félagið við að forðast gjaldþrot. Plymouth mun í kjölfarið missa tíu stig vegna þessa og fer með því á botninn í ensku C-deildinni. Plymouth er búið að glíma við mikil fjárhagsvandræði undanfarna mánuði og leikmenn og þjálfarar hafa ítrekað ekki fengið borguð laun á réttum tíma. Forráðamenn félagsins segja að félagið sé ekki enn komið í greiðslustöðvun og að þeir vonist til þess að skiptastjóri hjálpi þeim að finna lausn á fjárhagsvandræðum félagsins. Kári hefur spilað með Plymouth undanfarin tvö tímabil en félagið féll út úr ensku B-deildinni síðasta vor og verður í mjög slæmri stöðu á botni C-deildarinnar missi félagið fyrrnefnd stig. Plymouth er nú með 33 stig í 19. sæti í ensku C-deildarinnar, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti. Dagenham & Redbridge er í neðsta sætinu en verður með fimm stigum meira en Plymouth missi félagið þessi tíu stig. Kári er fastamaður í liði Plymouth. Hann hefur spilað 28 af 31 deildarleik liðsins á þessu tímabili þar sem hann hefur skorað eitt mark, gefið tvær stoðsendingar, fengið sjö gul og tvö rauð spjöld.
Enski boltinn Mest lesið Glugganum lokað: Upptalning á öllu sem átti sér stað Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Slóvenía 79-87 | Sárt tap í Spodek Körfubolti Alþjóðadómari hraunar yfir tríóið: „Þrjár kolrangar ákvarðanir“ Körfubolti Maðurinn sem stal derhúfu af barni biðst afsökunar Sport „Hjartað rifið úr okkur“ Körfubolti Uppgjör: Pólland - Ísland 84-75 | Tækifærið á sigrinum hrifsað af Íslandi Körfubolti KKÍ kvartar til FIBA vegna dómgæslunnar Körfubolti „Gestrisni Stjörnunnar til háborinnar skammar“ Fótbolti Sætur sigur hjá Sveindísi sem reiddist og sparkaði í skilti Fótbolti Veifuðu eftir dómurunum sem flúðu af vettvangi: „Eðlilegt að þeir hlaupi í burtu“ Körfubolti Fleiri fréttir Sunnudagsmessan: Fylltu í eyðurnar Guardiola fer ótroðnar slóðir með Donnarumma milli stanganna Grimsby notaði ólöglegan leikmann gegn United en slapp með sekt Biturðin lak af tilkynningu um Isak Man. City seldi markvörð og lánaði varnarmann Pressan gríðarleg eftir eyðslu sumarsins „Sjáum af hverju hann er að reyna koma honum í liðið“ Isak dýrastur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Guéhi ekki til Liverpool Sjáðu stórfurðulegt viðtal við Emery: Svaraði öllum spurningum Marco Bizot Glugganum lokað: Upptalning á öllu sem átti sér stað Sjáðu sturlað sigurmark Liverpool og öll hin Glæsimark Szoboszlai tryggði sigurinn City tapaði öðrum leiknum í röð en fyrstu sigrar Brighton og West Ham Dómari tekinn af leik Liverpool og Arsenal nokkrum klukkutímum fyrir leik Andri Lucas flytur til Englands Gerir eins og Isak en vill komast til Newcastle Hneykslaður á United: Fögnuðu markspyrnu eins og þeir væru að vinna HM Markalaust ómarkvert jafntefli á Elland Road Bournemouth stöðvaði sigurgöngu Tottenham og Grealish áfram í stuði Vítaspyrna í uppbótartíma bjargaði United fyrir horn Chelsea á toppnum eftir tvo umdeilda dóma Segja Manchester United skulda Antony 996 milljónir í laun Sjáðu mörkin hjá sex yngstu markaskorum í sögu Liverpool Romano segir Real Betis hafa dregið samþykkt tilboð í Antony til baka Tommi Steindórs fór á kostum í framburðarprófi Fyrsta tapið hjá Willum og félögum kom í Leicester Tottenham borgar 8,6 milljarða fyrir Xavi Simons Tveir nýliðar en ekkert pláss fyrir Trent og Grealish „Stundum hata ég leikmenn mína“ Sjá meira