Skulda hóteli í Boston fimmtán þúsund dali 26. nóvember 2011 09:00 Starfsmenn skólans þurftu að hætta við ferð til Boston í vetrarfríinu eftir að Iceland Express felldi niður flug. Hótelið vildi 75 prósent af reikningnum greidd en sættist á endanum við fjórðung eftir hótanir um illt umtal að sögn skólastjórans.
Boston Sextíu manna hópur starfsmanna Brekkubæjarskóla sem urðu af ferð til Boston þarf að greiða hóteli í borginni rúma 15 þúsund dollara, eða ríflega 1,7 milljónir króna, vegna afpöntunarinnar. Arnbjörg Stefánsdóttir, skólastjóri Brekkubæjarskóla, segir hópinn hafa ætlað saman í námsferð í vetrarfríi skólans í október. Fengið hafi verið tilboð í flugið frá Iceland Express sem einnig hafi ætlað að útvega hótel. „En svo drógu þeir það til baka og við þurftum að útvega hótel sjálf. Þetta var ráðstefnuhelgi í Boston og þess vegna lentum við á frekar dýru hóteli,“ segir Arnbjörg. Um mánuði fyrir brottför tilkynnti Iceland Express svo að ekkert yrði af fluginu til Boston. „Við reyndum að komast með Icelandair en hefðum þá þurft að fara í tveimur lotum og annar hópurinn hefði ekki náð skólaheimsóknum í tvo daga. Þess utan var markmiðið að fara sem heild en ekki í tveimur hópum,“ segir Arnbjörg. Hópurinn er afar ósáttur. „Við vorum mjög reið út í flugfélagið fyrir að fella flugið niður og veltum fyrir okkur hvort þeir voru búnir að sjá það fyrir þegar þeir allt í einu gátu ekki útvegað okkur hótel,“ útskýrir skólastjórinn. Fyrirvarinn var of stuttur til að hægt væri að afpanta hótelið sem krafðist þess að fá þrjár af fjórum gistinóttum greiddar. Arnbjörg segir að hver og einn hafi átt að borga jafnvirði tæplega 80 þúsund króna og að hótelið hafi verið alveg ósveigjanlegt. „Við hótuðum þeim illu umtali á ferðasíðum og þá komu þeir til móts við okkur og við þurfum að borga andvirði einnar nætur,“ segir skólastjórinn. Því þarf hver og einn úr hópnum að greiða 30 þúsund krónur en ekki nærri 80 þúsund. Ætlunin var að hver og einn sækti um ferðastyrk hjá sínu stéttarfélagi. Engir styrkir fást hins vegar í stöðunni sem nú er uppi. Rætt hefur verið við umboðsmann skuldara, Neytendasamtökin og Kennarasamband Íslands. Iceland Express er ekki bótaskylt nema gagnvart því að endurgreiða fargjöldin. Greiðslukort Akraneskaupstaðar var trygging fyrir hótelpöntuninni. „Við áttum náttúrlega ekki von á að þurfa að nota kortið í svona ömurlegum tilgangi,“ segir Arnbjörg. Bæjarstjórn Akraness hefur nú samþykkt ósk hennar um að starfsmennirnir fái að endurgreiða bænum hótelreikninginn á þremur til sex mánuðum. gar@frettabladid.is
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Sjá meira