Fyrrum forseti FIFA í slæmum málum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. júní 2011 18:00
Siðanefnd Alþjóða ólympíunefndarinnar hefur hafið rannsókn á ásökunum sjónvarpsþáttar BBC á hendur João Havelange fyrrum forseta FIFA. Brasilíumaðurinn, sem er 95 ára gamall, er sakaður um að hafa þegið mútur. Guardian fjallar um málið. Í BBC-þættinum „FIFA: Skömm fótboltans" sem sýnd var í maí, var fjallað um tengsl FIFA við svissneska markaðsfyrirtækið ISL. Fyrirtækið, sem var úrskurðað gjaldþrota árið 2001, fékk endurtekið auglýsinga- og markaðsréttinn að heimsmeistarakeppnunum í knattspyrnu þrátt fyrir að önnur fyrirtæki hafi verið tilbúin að greiða hærra fé. Sjónvarpsmaður BBC veltir fyrir sér hvernig stóð að því að ISL hafi endurtekið fengið jafnstóran íþróttaviðburð og HM í knattspyrnu í sínar hendur. Í myndinni er sagt frá því að Havelange hafi fengið eina milljón dollara frá ISL. Raunar hafi peningurinn fyrir mistök verið lagður inn á reikning FIFA sem hafi í framhaldinu lagt féð inn á persónulegan reikning Havelange. Því er einnig haldið fram að Sepp Blatter, sem þá var framkvæmdastjóri FIFA, hafi vitað af málinu en ekkert aðhafst. Havelange hefur ekkert látið hafa eftir sér varðandi ásakanirnar. Ólympíunefndin hefur verið í sambandi við BBc í töluverðan tíma. Í fyrri heimildarmynd BBC um vandræði innan FIFA sem sýnd var í nóvember var Issa Hayatou, forseti afríska knattspyrnusambandsins, sakaður um 10.000 dollara mútugreiðslu frá ISL. Síðan þá hefur málið verið í skoðun hjá siðanefnd Ólympíunefndarinnar. En nú hefur rannsóknin náð til Havelange sem auk Hayatou á sæti í Alþjóða Ólympíunefndinni. Í svari nefndarinnar við fyrirspurn breska dagblaðsins Guardian segir: „IOC tekur allar ásakanir um spillingu alvarlega og við viljum að öll sönnunargögn á hendur meðlimum nefndarinnar berist siðanefndinni."
Fótbolti Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Fótbolti Fleiri fréttir Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Sjá meira