Danskur sjónvarpsmaður: Væru mikil vonbrigði að komast ekki í undanúrslit Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 18. júní 2011 15:00
Christian Høgh Andersen, sjónvarpsmaður á TV2 í Danmörku, reiknar með að leikmenn danska U-21 liðsins munu ekki vanmeta íslenska liðið fyrir leik liðanna í kvöld. „Hinn venjulegi Dani telur að leikurinn í kvöld ætti að vera formsatriði fyrir danska liðið," sagði Andersen en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Það er vegna þess að þegar að A-landsliðið spilar við Ísland finnst honum að það eigi að vinna Ísland." „En ef þú spyrð leikmennina sjálfa vita þeir vel að Ísland á marga góða unga leikmenn og þeir búast við erfiðum leik." Hann segir að gengi íslenska liðsins á EM í Danmörku hafi komið sér á óvart. „Ég sá fyrir mótið að þeir höfðu ekki tapað tólf af fjórtán leikjum sínum í undankeppninni og nú hafa þeir tapað tveimur leikjum í úrslitakeppninni. Þetta hefur því komið mér nokkuð á óvart, sérstaklega að liðið skyldi hafa tapað fyrir Hvíta-Rússlandi." Andersen segir að danska liðið hafi ekki farið vel af stað á mótinu en þeir hafi virkað taugaóstyrkir í leiknum gegn Sviss um síðustu helgi. „Í seinni leiknum fannst mér þeir spila mjög vel og buðu þeir upp á frábæran knattspyrnuleik gegn Hvíta-Rússlandi." Markmið danska liðsins er að komast í undanúrslit en liðið fellur úr leik ef það tapar fyrir Íslandi í kvöld. „Það væru því mikil vonbrigði fyrir danska liðið að komast ekki í undanúrslitin, einnig vegna þess að þá á það ekki lengur möguleika á að komast á Ólympíuleikana á næsta ári."
Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Rekinn rétt fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Valur - ÍBV | Gera fyrrum félagar Hermanns honum skráveifu? Lofsungu Glódísi: „Stolt að geta deilt þessari stund með einstökum leikmanni“ Rekinn rétt fyrir HM Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Búningsklefi FC Basel eyðilagðist í bruna Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjá meira