Íslenski boltinn

Grétar samdi við Keflavík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Grétar Ólafur Hjartarson og Jósef Kristinn Jósefsson.
Grétar Ólafur Hjartarson og Jósef Kristinn Jósefsson. Mynd/Vilhelm

Grétar Ólafur Hjartarson hefur gert eins árs samning við Keflavík. Þetta staðfesti Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, við fréttastofu.

Grétar var samningslaus en lék nú síðast með Grindvíkingum í Pepsi-deild karla. Þar áður lék hann með KR en hann á einnig nokkur ár að baki í atvinnumennsku.

Grétar kom við sögu í 20 leikjum í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði alls þrjú mörk í þeim. Hann hefur skorað alls 65 mörk í 156 leikjum í efstu deild.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×