Innlent

Rannsókn lokið á árásinni i Reykjanesbæ

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Axel Karl Gíslason er annar mannanna sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins.
Axel Karl Gíslason er annar mannanna sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins.
Lögregla hefur lokið rannsókn á máli tveggja manna sem grunaðir eru um að hafa ráðist á karlmann á sjötugsaldri, eiginkonu hans og dóttur þeirra við heimili fjölskyldunnar í Reykjanesbæ í byrjun maí. Samkvæmt heimildum Vísis hefur málið verið sent Ríkissaksóknara og þar verður tekin ákvörðun um ákæru í málinu.

Mennirnir sem um ræðir heita Viktor Már Axelsson og Axel Karl Gíslason. Þeir réðust á manninn og handleggsbrutu, að því er fram kom í úrskurði héraðsdóms þegar þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir árásina. Tilgangur þeirra var að finna barnabarn mannsins sem þeir hugðust hafa pening út úr. Mennirnir voru handteknir stuttu síðar. Annar þeirra reyndist vera með hníf auk þess sem hann var vopnaður exi og hamri.

Þeir Viktor og Axel áttu aðild að svokölluðu Barðastrandaráni á Seltjarnarnesi, þegar ráðist var á gullsmið, hann keflaður og verðmæti hirt af gullsmíðaverkstæði á heimili hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×