Íslenski boltinn

Lokaleikur Íslands verður í Portúgal

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/Stefán
Mynd/Stefán

Í dag var dregið um leikdaga í riðli Íslands í undankeppni EM 2012.

Fyrsti leikur Íslands í riðlinum er gegn Noregi á heimavelli en sá síðasti gegn Portúgal ytra.

Dregið var á fundi framkvæmdastjórnar UEFA sem fram fer í Tel Aviv. Fyrsti leikur Íslands er 3. september á þessu ári.

Leikdagar Íslands eru eftirfarandi:

Heimaleikir

Noregur - 3. september 2010

Portúgal - 12. október 2010

Danmörk - 4. júní 2011

Kýpur - 6. september 2011

Útileikir

Danmörk - 7. september 2010

Kýpur - 26. mars 2011

Noregur - 2. september 2011

Portúgal - 7. október 2011




Fleiri fréttir

Sjá meira


×