Tilræðismaður páfa vill verða ríkur Óli Tynes skrifar 19. janúar 2010 13:30 Jóhannes Páll fyrirgaf Agca og heimsótti hann í fangelsið.
Tyrkinn sem særði Jóhannes Pál páfa byssuskotum árið 1981 segist nú munu skýra frá því hversvegna hann reyndi að myrða hann. Mehmet Ali Agca var látinn laus úr fangelsi í gær. Hann ætlar þó ekki að leysa frá skjóðunni fyrir en hann hefur fengið greiddar einhverjar milljónir sterlingspunda fyrir viðtöl, bækur og kvikmyndir. Aldrei hefur verið upplýst af hverju Agca reyndi að myrða Jóhannes Pál. Vangaveltur hafa verið um að hann hafi verið útsendari sovésku leyniþjónustunni sem óttaðist áhrif hins pólska páfa sem var ákafur andkommúnisti. Árið 1981 var Agca tuttugu og fjögurra ára gamall glæpamaður sem var á flótta undan tyrkneskum yfirvöldum. Hann sat í fangelsi á Ítalíu í nítján ár. Árið 2000 var hann náðaður og framseldur til Tyrklands. Þar var hann aftur dæmdur í fangelsi meðal annars fyrir morð á blaðamanni. Spurningar hafa vaknað um geðheilsu Tyrkjans. Þeim spurningum fækkar sjálfsagt ekki eftir yfirlýsingu frá honum sem lögmenn hans komu á framfæri í gær þegar hann var látinn laus. Í henni segir; „Ég lýsi yfir endalokum heimsins. Öllum heiminum verður eytt á þessari öld. Allt mannkynið mun deyja á þessari öld. Ég er hinn eilífi Kristur."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Fleiri fréttir Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Sjá meira