Enski boltinn

Vill að ungu strákarnir þurfi að hafa fyrir hlutunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, er einn fjölmargra sem hefur áhyggjur af því valdi sem leikmenn hafa í knattspyrnuheiminum í dag.

Í kjölfar Rooney-málsins hafa margir biðlað til FIFA að taka í taumana og koma einhverri reglu á hlutina.

Redknapp vill að sérstaklega sé skoðað hvernig málum ungra leikmanna sé háttað.

"Ég hef áhyggjur af krökkunum. Lið eru að lenda í því að gera langa samninga við krakka af ótta við að missa þá. Þeir koma til félaganna 17 ára gamlir og allt í einu standa þeir uppi með 4 eða 5 ára samning," sagði Redknapp.

"Þá eru þeir komnir í þá stöðu að geta gert það sem þeir vilja þar sem þeir eiga nóg af peningum. Einhverjir munu leggja sig alla fram en meirihlutinn mun hafa það of þægilegt."

Redknapp vill að ungir leikmenn eigi ekki að fá meira en eins árs samning svo þeir þurfi að vinna fyrir hverjum nýjum samningi.

"Það er eitthvað sem stjörnurnar í gamla daga þurftu að gera. Þeir þurftu að hafa fyrir hlutunum. Í dag fá krakkarnir langa samninga þar sem félögin óttast svo að missa þá frá sér."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×