Guðjón: Eiður verður frábær ef Stoke kemur honum í form Henry Birgir Gunnarsson skrifar 13. september 2010 10:35 Guðjón á hliðarlínunni með Stoke á sínum tíma.
Guðjón Þórðarson er á því að Eiður Smári Guðjohnsen geti gert fína hluti með Stoke í vetur að því gefnu að hann komist í toppform og liðið noti hann rétt. Guðjón fékk níu Íslendinga til Stoke á sínum tíma en Eiður var allt of dýr fyrir félagið á þeim tíma. Þjálfarinn vann þó með Eiði Smára hjá landsliðinu og þekkir því vel til Eiðs Smára. "Ég tók hann inn í landsliðið þegar hann var ungur og nýbúinn að jafna sig af erfiðum ökklameiðslum. Eiður stóð sig vel hjá mér og hefur átt frábæran feril. Því miður var hann of dýr þegar ég stýrði Stoke," sagði Guðjón við This is Staffordshire. "Ég held að hann geti staðið sig mjög vel fyrir Stoke. Ég vona að hann standi sig því þá munu stuðningsmennirnir elska hann. Ef liðið kemur honum í form þá verður hann frábær. "Það þarf að hjúkra honum og sjá vel um hann. Það er ekki hægt að leggja of mikið á hann og hætta þar með á meiðslum. Það þarf líka að koma boltanum til hans. Það er ekki hægt að ætlast til þess að hann sæki boltann alltaf út við hornfánann. "Eiður getur verið duglegur og pressað leikmenn með boltann en það er ekki hans stíll að elta og tækla. Eiður er ekki eigingjarn leikmaður og leitast við að opna vörnina fyrir bæði sjálfan sig og félaga sína. Hann er klókur leikmaður og hinir leikmennirnir í liðinu verða að vera á tánum þegar hann setur boltann í opin svæði. Hann getur aðeins gert ákveðið mikið sjálfur. Félagar hans verða að læra að lesa hann," sagði Guðjón og bætir við. "Við kölluðum annan leikmann hvítu perluna en ég tel Eið líka vera hvíta perlu. Hann er hávaxinn, ljóshærður og myndarlegur. Ég valdi hann samt í liðið út af fótboltahæfileikunum."
Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Fleiri fréttir Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Sjá meira