Íslendingar bjarga barnslífum 25. nóvember 2010 17:36 Stefán Ingi og UNICEF-hópurinn setti rautt nef á borgarstjóra Reykjavíkur á dögunum og vonast eftir því að sem flestir fylgi hans fordæmi í næstu viku. „
Með þátttöku í degi rauða nefsins undanfarin tvö skipti hafa Íslendingar bjargað ótal barnslífum og veitt börnum um allan heim tækifæri sem þau hefðu annars ekki fengið og von um betra líf," segir Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Föstudaginn 3. desember er dagur rauða nefsins og mun þá fara fram stærsta sjónvarpssöfnun Íslandssögunnar í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi. Stefán Ingi segir að það sé innileg von hans að Íslendingar sýni áfram örlæti sitt í verki föstudaginn 3. desember og staðfesti þar með enn einu sinni hversu annt þeim sé um réttindi barna í hvaða heimshluta sem þau kunna að búa. „Það er von á ótrúlega skemmtilegum söfnunarþætti þann 3. desember. Þar munu leiða saman hesta sína skemmtikraftar af eldri kynslóðinni og yngri. Það átta sig ekki allir á því hvað við getum lagt af mörkum fyrir börn heimsins. Sem dæmi um hvað UNICEF getur gert fyrir þá styrki sem safnast hafa á degi rauða nefins hingað til, eða hvorki meira né minna en 328 milljónir, má nefna að samtökin geta t.d. bólusett yfir 10 milljón börn gegn mislingum og verndað þau þannig gegn þessum banvæna sjúkdómi. Það eru þrjátíu sinnum fleiri börn en allir Íslendingar til samans." Hann segir að hjálparstarfið hafi skilað gríðarlegum árangri á undanförnum árum. „Í dag deyja t.d. um fjórum milljónum færri börn yngri en fimm ára á hverju ári en fyrir tveimur áratugum," segir Stefán Ingi. „Mig langar að þakka þeim listamönnum, fyrirtækjum, tæknifólki, sjálfboðaliðum og öðrum velunnurum sem hafa gert þennan stóra viðburð að veruleika. Stuðningur allra þessara aðila hefur verið ómetanlegur og ótrúlega gaman að upplifa áhuga og metnað allra sem hafa lagt okkur hjálparhönd."
Mest lesið „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Innlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Fleiri fréttir Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Sjá meira