Sautján komnir upp 13. október 2010 12:17 Mario Gomez var sá níundi til að komast út undir bert loft.
Fölskvalaus gleði ríkir nú í Chile þar sem hverjum námumanninum af öðrum er bjargað úr iðrum jarðar. Grátandi ættingjar taka á móti þeim og jafnvel harðbitnir fréttamenn fella tár. Tólf námumenn af 33 eru komnir upp á yfirborðið þegar þetta er skrifað. Þeir eru hífðir upp um þrönga borholu af 700 metra dýpi í sérhönnuðu björgunarhylki sem er ekki mikið breiðara en axlir þeirra. Ferðin upp tekur um 20 mínútur sem er talsvert styttri tími en búist var við í upphafi. Á meðan eru þeir í talsambandi bæði niður í námuna og upp á yfirborðið. Það tekur á aðra klukkustund að bjarga hverjum manni því hylkið þarf jú að fara niður aftur, og það er vandlega yfirfarið eftir hverja ferð, bæði niðri í námunni og á yfirborðinu. Björgunin hófst í nótt með því að einn björgunarmanna seig niður til námumannanna í hylkinu, til þess að stjórna aðgerðum. Það urðu miklir fagnaðarfundir. Þeir sem þegar eru komnir upp virðast allir í góðu líkamlegu ásigkomulagi. Það var meðvituð ákvörðun að taka hraustustu mennina upp fyrst. Þeir voru valdir með það í huga að þeir ættu auðveldara með að takast á við það ef eitthvað færi úrskeiðis í fyrstu ferðum hylkisins. Á yfirborðinu bíða ættingjar og vinir. Gleðin er fölskvalaus þegar hver maðurinn kemur upp á eftir öðrum. Ættingjarnir gráta og hrópa og faðma ástvininn að sér. Stemmingin er slík að jafnvel harðbitnustu fréttamenn hafa sést strjúka burt tár. Í stað þjóðarsorgarinnar sem ríkti fyrir 69 dögum þegar mennirnir voru taldir af, ríkir nú þjóðargleði í Chile.
Tengdar fréttir Námumennirnir koma upp einn af öðrum Námumennirnir 33 frá Chile sem hafa verið fastir í iðrum jarðar á rúmlega 600 metra dýpi í rúma tvo mánuði eru farnir að koma upp á yfirborðið einn af öðrum. 13. október 2010 06:59 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira
Námumennirnir koma upp einn af öðrum Námumennirnir 33 frá Chile sem hafa verið fastir í iðrum jarðar á rúmlega 600 metra dýpi í rúma tvo mánuði eru farnir að koma upp á yfirborðið einn af öðrum. 13. október 2010 06:59