Umfjöllun: Andleysi KR algjört er Selfoss vann frábæran sigur Jón Júlíus Karlsson skrifar 16. maí 2010 18:15 Mynd/Valli
Það voru Selfyssingar sem fóru heim með öll stigin í Frostaskjólinu í kvöld eftir mjög óvæntan sigur á KR, 1-2. Það ljóst frá fyrstu mínútu hvort liðið vildi sigurinn meira og mikil ákveðni skein úr andlitum Selfyssinga. Sævar Þór Gíslason átti sérlega góðan leik í kvöld og hann átti heiðurinn að fyrsta marki Selfyssinga. Hann slapp í gegnum vörn KR-inga á 13. mínútu og var felldur innan vítateigs af Lars Ivar Moldsked, markverði KR. Þorvaldur Árnason, dómari, var viss í sinni sök og dæmdi víti og veifaði rauða spjaldinu á Moldsked. Ingólfur Þórarinsson steig á vítapunktinn og skoraði. Frábær byrjun hjá Selfyssingum og stuðningsmennirnir í stúkunni trúðu vart sínum eigin augum. Það mátti sjá á spilamennsku KR að þeim gekk illa að koma boltanum í spil. Þeir voru óþolinmóðir og fóru illa með fá en góð færi. KR-ingar héldu að þeir væru búnir að jafna á 36. mínútu þegar Björgólfur Takefusa skoraði af stuttu færi. Markið var hins vegar dæmt af vegna rangstöðu. Stuttu seinna fór Baldur Sigurðsson illa með gott færi þegar skalli hans af stuttu færi var frábærlega varinn af Jóhanni Ólafi Sigurðssyni í marki Selfoss. Staðan því 0-1 fyrir Selfoss í hálfleik. Það voru fáir sem trúðu gang mála þegar Sævar Þór Gíslason skeiðaði upp hægri kantinn og gaf frábæra sendingu inn í teiginn sem Jón Daði Böðvarsson afgreiddi vel í netið á 53. mínútu og kom Selfossi í 0-2. Frábært mark og KR-ingar réðu ekkert við Sævar Þór sem skapaði hvað eftir annað usla í vörn KR-inga. Jafnt varð í liðum þegar Agnar Bragi Magnússon úr Selfossi fékk að líta rauða spjaldið fyrir háskalega tæklingu á Guðjóni Baldvinsson á 66. mínútu. KR náði að minnka muninn nokkrum mínútum fyrir leikslok með góðu skallamarki frá Baldri Sigurðssyni á 86. mínútu sem hleypti smá spennu í leikinn. KR náði hins vegar ekki að ógna marki Selfyssinga það sem eftir lifði leiks og gríðarlega óvæntur sigur staðreynd. Andleysið var algjört hjá KR-ingum. Allan baráttuvilja skorti meðan að Selfyssingar börðust sem einn maður. Varnarmenn KR-inga áttu slakann dag og lentu hvað eftir annað í vandræðum með hraða Selfyssinga. Allt annað var að sjá Selfyssinga sem iðuðu að baráttu og áttu sigurinn fyllilega skilinn. Sævar Þór var frábær og sýndi að hann hefur engu gleymt. Vel var fagnað í leikslok og mun sigurinn vafalaust lifa lengi í minningunni á Selfossi. KR situr hins vegar eftir með aðeins eitt stig eftir fyrstu tvo leikina í deildinni. Flestir höfðu spáð þeim sex stigum á móti nýliðunum á heimavelli en frammistaða þeirra í kvöld var mjög slök og alls enginn meistarabragur á liðinu.KR-Selfoss 1-2 0-1 Ingólfur Þórarinsson (13. vsp.) 0-2 Jón Daði Böðvarsson (53.) 1-2 Baldur Sigurðsson (86.) Áhorfendur: 2.194 Dómari: Þorvaldur Árnason 7 Tölfræðin: Skot (á mark): 13-8 (6-6) Varin skot: Þórður 3 - Jóhann 6 Horn: 4-7 Aukaspyrnur fengnar: 12-15 Rangstöður: 5-1KR (4-4-2) Lars Ivar Moldsked - Bjarni Guðjónsson 6 Skúli Jón Friðgeirsson 6 Baldur Sigurðsson 6 Óskar Örn Hauksson - (13., Þórður Ingason 6) Björgólfur Hideaki Takefusa 6 Viktor Bjarki Arnarsson 5 (65., Guðmundur Reynir Gunnarsson 6) Mark Rutgers 6 (46., Kjartan Henry Finnbogason 5) Gunnar Örn Jónsson 6 Guðjón Baldvinsson 6 Jordao Diogo 5Selfoss (4-5-1) Jóhann Ólafur Sigurðsson 7 Sigurður Eyberg Guðlaugsson 6 Arilíus Marteinsson 6 (62., Ingi Rafn Vilbergsson 6) Agnar Bragi Magnússon 5 Andri Freyr Björnsson (88., Jón Steindót Sveinsson -) Ingólfur Þórarinsson 7 Sævar Þór Gíslason 7 Maður leiksins (75., Kjartan Sigurðsson 6) Guðmundur Þórarinsson 7 Stefán Ragnar Guðlaugsson 6 Jón Daði Böðvarsson 7 Jón Guðbrandsson 6
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Sport „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport NFL-stjarna giftist heimsmeistara Sport Rændir í miðju lyfjaprófi Handbolti Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Enski boltinn Fleiri fréttir Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Sjá meira