Íslenski boltinn

Umfjöllun: Seigla Grindvíkinga skóp annan sigurinn í röð

Ari Erlingsson skrifar
Mynd/Arnþór
Grindvíkingar innbyrtu annan sigurinn í röð eftir ótrúlega endurkomu gegn lánlausu Haukaliði. Maður kvöldsins var Gilles Mbang Ondo sem skoraði 2 mörk í 2-3 sigri liðsins.

Haukar tóku forystu eftir að rangstöðuvörn Grindvíkinga klikkað og Sam Mantom komst einn í gegn og sendi á gamla brýnið Arnar Gunnlaugsson sem átti ekki í vandræðum með að afgreiða boltann í netið.

Jafnræði var með liðunum það sem eftir lifði hálfleiksins og það var því mikið áfall fyrir Grindvíkinga þegar Hilmar Geir Eiðsson bætti við öðru marki á 42. mínútu. Hann afgreiddi stungusendingu Arnars Gunnlaugssonar snyrtilega með skoti stönginn inn. Nú þurftu Grindvíkingar að auka sóknarkraftinn, enda skipti Ólafur þjálfari Grétari Hjartarsyni inná fyrir Óla Baldur Bjarnason á síðustu mínútu fyrri hálfleiks.

Grindvíkingar náðu betri tökum á leiknum og það var því sanngjarnt þegar Orri Freyr Hjaltalín skoraði eftir hornspyrnu á 62. mínútu. Haukar féllu í þá gryfju að falla of aftarlega og það nýtti Ondo sér til fullnustu. Hann skoraði fyrst á 78. mínútu eftir sendingu frá Scott Ramsay og loks kom hann þeim gulu yfir mínútu seinna eftir góðan sprett frá Jósef Kristini upp vinstri kantinn. Ótrúleg seigla hjá þeim gulu.

Haukar voru nokkrum sinnum nálægt því að jafna síðustu 10 mínútur leiksins en allt kom fyrir ekki. Grindavíkursigur staðreynd. Tveir sigrar hjá Ólafi Erni Bjarnasyni og báðir eiga þeir það sammerkt að hafa náðst eftir að sveinar hans lentu undir. Haukar hinsvegar þurfa að bíða enn um sinn eftir sínum fyrsta sigri í sumar.

Varnir beggja liða voru óöruggar og nýttu sóknarmenn liðanns sér það vel. Ondo var besti maður vallarins. Daði Lárusson og Arnar Gunnlaugsson gömlu kempurnar hjá Haukum stóðu upp úr hjá þeim rauðklæddu.

Haukar - Grindavík 2-3

1-0 Arnar Gunnlaugsson (18.)

2-0 Hilmar Geir Eiðsson (42.)

2-1 Orri Freyr Hjaltalín (62.)

2-2 Gilles Mbang Ondo (78.)

2-3 Gilles Mbang Ondo (79.)

Áhorfendur: 495

Dómari: Kristinn Jakobsson 7

Skot (á mark): 8-14 (6-8)

Varin skot: Ómar 2- Daði 2

Horn: 4-5

Aukaspyrnur fengnar: 17-16

Rangstöður: 3-8

Haukar (4-5-1):

Daði Lárusson 8

Pétur Örn Gíslason 5

Guðmundur Viðar Mete 4

(77. Hilmar Rafn Emilsson -)

Daníel Einarsson 5

Kristján Ómar Björnsson 4

Úlfar Hrafn Pálsson 5

Guðjón Pétur Lýðsson 6

Gunnar Ormslev Ásgeirsson 6

(82. Jónmundur Grétarsson -)

Sam Mantom 7

Hilmar Geir Eiðsson 6

(66. Ásgeir Þór Ingólfsson 5)

Arnar Bergmann Gunnlaugsson 7

Grindavík (4-5-1):

Rúnar Dór Daníelsson 6

Ray Anthony Jónsson 6

Auðun Helgason 5

Orri Freyr Hjaltalín 5

Jósef Kristinn Jósefsson 7

Scott Mckenna Ramsay 6

Jóhann Helgason 5

Marko Valdimar Stefánsson 5

(46. Grétar Ólafur Hjartarsson 6)

Matthías Örn Friðriksson 6

(72. Loic Mbang Ondo -)

Óli Baldur Bjarnason 7

(86. Alexander Magnússon -)

Gilles Mbang Ondo 8 - Maður leiksins

Smelltu hér til að opna Boltavaktina og lesa lýsingu leiksins: Haukar-Grindavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×