Innlent

Flokksráð VG ekki kallað saman

Frá flokksráðsfundi VG.
Frá flokksráðsfundi VG. Mynd/Stefán Karlsson
Þingflokkur Vinstri grænna kemur saman klukkan níu í fyrramálið í þinghúsinu. Flokksráð VG verður ekki boðað til fundar vegna uppstokkunar á ríkisstjórninni. „Það er þingflokkurinn sem raðar upp sínum ráðherrum," sagði Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri þingflokksins, í samtali við fréttastofu í kvöld.

Stefnt er að ráðherraskiptum á morgun áður en Alþingi verður sett eftir hádegi. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur sem formaður Samfylkingarinnar umboð flokksstjórnar flokksins til að gera breytingar á ríkisstjórninni, en síðdegis var ákveðið að kalla flokksstjórnina saman klukkan tíu í fyrramálið, að loknum þingflokksfundi. Flokksstjórnin kemur saman á Hótel Loftleiðum.

Ríkisráðsfundur verður haldinn á Bessastöðum klukkan hálf tólf á morgun. Fundir ríkisráðs eru að jafnaði haldnir tvisvar á ári, um mitt ár og á gamlársdag, en einnig við ríkisstjórnar- og ráðherraskipti.


Tengdar fréttir

Samfylkingin boðar til fundar

Flokksstjórn Samfylkingarinnar hefur verið boðuð til fundar klukkan tíu á morgun á Hótel Loftleiðum til að ræða fyrirhugaða uppstokkun í ríkisstjórninni. Stefnt er að ráðherraskiptum á morgun áður en Alþingi verður sett eftir hádegi.

Nýir ráðherrar taka væntanlega við keflinu á morgun

Nýir ráðherrar í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur taka væntanlega við embættum sínum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í fyrramálið. Ekki þarf að kalla saman flokksráð Samfylkingarinnar til að samþykkja nýja ráðherraskipan.

Formaður SI vill að Kristján Möller sitji áfram sem ráðherra

Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, telur ástæðu til að óttast að uppstokkun í ríkisstjórn geti heft framgang samgönguframkvæmda hverfi núverandi samgönguráðherra, Kristján Möller, úr stjórn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Hrókeringar í ríkisstjórn í dag

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, og Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, munu hætta í ríkisstjórninni í vikunni. Allar líkur eru á að Kristján L. Möller samgönguráðherra og Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hverfi einnig á braut. Tilkynnt verður um breytingar á ríkisstjórninni áður en þing kemur saman á morgun.

Þingflokkarnir funda

Þingflokksfundir hafa verið boðaðir hjá stjórnarflokkunum í tengslum við uppstokkun í ríkisstjórninni. Þingmenn VG hittast klukkan níu og Samfylkingarmenn klukkutíma síðar.

Vilja ekki bæði Ögmund og Jón í ríkisstjórn

Mikil óánægja er innan Samfylkingarinnar með að Ögmundur Jónasson sé á leið inn í ríkisstjórn á sama tíma og Jón Bjarnason situr þar áfram, en þeir eru báðir sagðir tilheyra órólegu deildinni í Vinstri grænum. Af þessum sökum hefur forsætisráðherra ákveðið að kalla saman flokksstjórnarfund í Samfylkingunni í fyrramálið.

Ríkisráð kemur saman

Ríkisráðsfundur verður haldinn á morgun á Bessastöðum klukkan tólf. Fundir ríkisráðs eru að jafnaði haldnir tvisvar á ári, um mitt ár og á gamlársdag, en einnig við ríkisstjórnar- og ráðherraskipti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×