Grindavík skiptir um þjálfara á miðju tímabili í fjórða sinn á sex árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2010 14:43 Orri Freyr Hjaltalín er oft búinn að fá nýjan þjálfara á síðustu árum. Mynd/Vilhelm
Grindvíkingar hafa nú annað árið í röð skipt um þjálfara eftir aðeins nokkra leiki á Íslandsmótinu. Í fyrra hætti Milan Stefán Jankovic með liðið eftir aðeins þrjá leiki og í dag var Lúkas Kostic rekinn eftir fjórða tap liðsins í fjórum fyrstu leikjum Pepsi-deildar karla. Grindavík var einnig stigalaust þegar Lúkas Kostic tók við liðinu í fyrra af Milan Stefán Jankovic sem hætti með liðið eftir 2-3 tap á móti Fjölni í Grafarvogi. Lúkasi tókst að fá fjögur stig út tveimur fyrstu leikjum sínum með liðið og Grindavík endaði að lokum í 9. sæti deildarinnar. Nú situr Grindavík stigalaust á botninum eftir fjóra leiki og liðið hefur aðeins skorað eitt mark á fyrstu 360 mínútum sínum í Pepsi-deildinni í sumar. Þetta er ennfremur í fjórða sinn á undanförnum sex árum sem Grindvíkingar skipta um þjálfara á miðju tímabili. Zeljko Sankovic hætti með liðið 15. júlí 2004 þegar það var í fallsæti eftir 11 leiki (af 18). Aðstoðarþjálfarinn Guðmundur Valur Sigurðsson tók við liðinu og bjargaði því frá falli. Sigurður Jónsson sagði af sér sem þjálfari Grindavíkur 13. september 2006 þegar aðeins tvær umferðir voru eftir. Magni Fannberg og Milan Stefán Jankovic tóku þá við liðinu en tókst ekki að koma í veg fyrir að liðið féll í fyrsta sinn úr efstu deild.Fyrstu þrír leikir Grindavíkur í fyrra Stjarnan-Grindavík 3-1 Grindavík-KR 0-4 Fjölnir-Grindavík 3-1Samanlagt: 3 leikir, 0 stig, 3 mörk skoruð, 10 mörk á sig, botnsætiFramhald: Grindavík fékk 4 stig út úr næstu tveimur leikjum og endaði mótið í 9. sætiFyrstu fjórir leikir Grindavíkur í ár Stjarnan-Grindavík 4-0 Grindavík-Keflavík 0-1 Fram-Grindavík 2-0 Grindavík-Valur 1-2Samanlagt: 4 leikir, 0 stig, 1 mark skorað, 9 mörk á sig, botnsætiFramhald: Næsti leikur á móti FH á mánudaginn
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Íslenski boltinn Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Fleiri fréttir Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjör og viðtöl: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjá meira