Tottenham lenti 2-0 undir á móti Arsenal en vann leikinn 3-2 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2010 14:36 Younes Kaboul skoraði sigurmarkið og hér fagnar hann með Gareth Bale og Jermaine Jenas Nordic Photos/Getty Images
Tottenham vann sinn fyrsta útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í 17 ár þegar liðið kom til baka eftir að lent 2-0 undir og tryggði sér 3-2 sigur. Younes Kaboul skoraði sigurmark Tottenham á 85. mínútu leiksins en Rafael van der Vaart skoraði eitt og lagði upp hin tvö. Arsenal-menn byrjuðu betur, voru miklu betri í fyrri hálfleiknum og 2-0 yfir í hálfleik. Tottenham minnkaði muninn í upphafi seinni hálfleiks og jafnaði síðan munin eftir klaufaleg mistök fyrirliða Arsenal, Cesc Fabregas. Sigurmark Younes Kaboul kom með skalla eftir aukaspyrnu Raphael van der Vaart þegar aðeins fimm mínútur voru til leiksloka. Kaboul kórónaði þarna flottan leik hjá sér. Samir Nasri kom Arsenal í 1-0 eftir aðeins níu mínútna leik. Nasri fékk þá frábæra stungusendingu frá Cesc Fabregas, sólaði Heurelho Gomes, markmann Tottenham, og náði að skora úr þröngri stöðu frá endalínunni. Gomes hikaði í úthlaupinu og það nýtti Frakkinn sér vel. Marouane Chamakh skoraði annað mark Arsenal á 27. mínútu þegar hann afgreiddi lága fyrirgjöf frá Andrei Arshavin í markið en markið kom eftir dæmigerða einna snertinga skyndisókn Arsenal. Harry Redknapp skipti Jermain Defoe inn á í hálfleik og það tók Tottenham menn aðeins rúmar fjórar mínútur að minnka muninn. Defoe átti þátt í markinu með því að koma boltanum á Rafael van der Vaart sem átti sniðuga sendingu inn í hlaupaleið Gareth Bale. Bale tók boltann með sér og afgreiddi hann laglega í hornið. Rafael van der Vaart jafnaði leikinn síðan á 67. mínútu þegar hann skoraði af öryggi úr vítaspyrnu. Vítið var dæmt á Fabregas fyrir að setja hendina fyrir skot Van der Vaart úr aukaspyrnu og var það mjög undarlegur varnarleikur hjá fyrirliða Arsenal. Tottenham fór upp í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með þessum sigri og er nú fjórum stigum á eftir Arsenal. Arsenal-liðið hefði jafnað topplið Chelsea að stigum hefði liðið unnið þennan leik eins og allt stefndi í þegar liðin gengu til hálfleiks.
Mest lesið Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Írland - Ísrael | Seinni leikurinn sem enginn vildi spila Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Portúgal - Noregur | Haaland og félagar reyna að stöðva heimamenn Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira