Innlent

Hugsanlegt að einhverjir fundir verði í Reykjavík

Stefán Haukur Jóhannesson.
Stefán Haukur Jóhannesson. Mynd/Stefán Karlsson

Ekki er útilokað að einhverjir fundir í væntanlegum viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu fari fram í Reykjavík. Venjan er að samningafundir um aðild ríkja fari fram í Brussel þar sem framkvæmdastjórnin hefur greiðan aðgang að stoðdeildum sínum.

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra og aðalsamningamaður Íslands, segir ljóst að fundahöld muni að mestu fara fram ytra en Íslandsfundir séu ekki útilokaðir.

Undirbúningur íslensku samninganefndarinnar fer fram á Íslandi.- bþs








Fleiri fréttir

Sjá meira


×