Kista Lee Harwey Oswalds til sölu Óli Tynes skrifar 1. desember 2010 20:00 Næturklúbbaeigandinn Jack Ruby skaut Oswald til bana tveim dögum eftir morðið á Kennedy.
Kistan sem var notuð til þess að jarðsetja Lee Harwey Oswald morðingja Kennedys Bandaríkjaforseta verður seld á uppboði í Los Angeles í næstu viku. Kennedy var myrtur 22 nóvember árið 1963. Oswald var sjálfur skotinn til bana tveim dögum eftir morðið og jarðsettur í furukistunni sem nú er til sölu. Ástæðan fyrir því að kistan er ofanjarðar er sú að ein af samsæriskenningunum í sambandi við morðið var sú að rússneskur njósnari hefði „stolið" persónu Oswalds til þess að myrða forseta Bandaríkjanna. Að ósk Marinu, ekkju Oswalds var hann því grafinn upp árið 1981 og lífsýni tekin. Þau sýndu svo ekki varð um villst að það var Oswald sem lá í kistunni. Hann var svo jarðsettur aftur í nýrri kistu. Á uppboðinu verða einnig áhöld þau sem notuð voru til að snyrta lík Oswalds á sínum tíma, dánarvottorð hans, páskakort sem hann sendi bróður sínum og hluti af bílsætinu sem Kennedy sat í þegar hann var skotinn. Uppboðshaldarinn segir að lágmarksboð í kistuna verði 1000 dollarar. Hann á þó von á að hún seljist fyrir miklu meira.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira