Völvan heldur mistæk - Spáir byltingu og illindum á nýju ári Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 28. desember 2010 19:30
Styrjaldarástand ríkir á Íslandi næsta árið, fólkið gerir byltingu - svo búsáhaldabyltingin verður sem barnaleikur einn. Hneyksli, logandi illindi, upplausn við stjórn landsins og kexverksmiðja er líklegri til að rísa í Helguvík en álver - segir hin bölsýna völva Vikunnar um árið 2011. Jafnvel sumarið, verður varla nema þokkalegt. Það er sem sé ekki bjart yfir völvunni þessi áramótin - en hún reyndist að vísu ekki ýkja sannspá á öllum sviðum í fyrra: Þegar hún sagði að: Snjóflóðin yrðu tvö, einu sem fréttastofa man eftir voru manngerð. Að ekkert eldgos yrði á árinu. Ekki orð um það meir. Ríkisstjórnin gæti fallið -og enn heldur hún. Þá var verðtryggingin ekki afnumin. Og sprengjan sem völvan spáði að Davíð Oddsson kastaði inn í þjóðlífið í febrúar - sá febrúar leið án þess að Davíð léti á sér kræla. En Ísland árið 2011 verður fremur ófrýnilegt í völvuspánni; óeirðir og læti, ríkisstjórnin springur, og arftaki hennar líka - fólkið gerir mikla byltingu, og mótmæli því að verið sé að hjálpa stóreignafólki og fyrirtækjum á meðan almúginn sé skuldsettur enn meir. Fjórflokkurinn er ýmist í sárum eða logandi í innanflokksátökum, spáir völvan. Jóhanna hrökklast frá völdum. Hreyfingin fjarar út og nýtt framboð fólksins kemur fram - þar sem Lilja Mósesdóttir verður hugsanlega í forystuhópnum. Eitt stærsta hneykslið verður tengt Finni Ingólfssyni og Ólafi Ólafssyni. Álver sér hún ekki á Bakka og á frekar von á kexverksmiðju en álbræðslu í Helguvík. Áfram telur hún að verði stormasamt í kringum Jónínu Ben og Gunnar í Krossinum. En það kemur líklega fæstum á óvart. Hér og þar örlar á bjartsýni; völvan spáir því til dæmis að miklir peningar finnist í þeirri fjársjóðsleit sem nú stendur yfir hjá sérstökum saksóknara. En hún er ekki bjartsýn á gengi okkar í Eurovision - ólíkt því sem var í fyrra þegar hún taldi að verðugur karlmaður yrði fulltrúi Íslands og myndi hreppa eitt af fimm efstu sætunum. Fulltrúinn reyndist vera kona. Og hún endaði í nítjánda sæti.
Tengdar fréttir Völvan spáir stjórnarslitum, óeirðum og byltingu Upplausn verður við stjórn landsins, ríkisstjórnin springur og einnig sú sem tekur við og bylting verður í þjóðfélaginu, af slíku tagi að búsáhaldabyltingin verður barnaleikur einn í samanburðinum. Þetta segir Völva vikunnar um árið sem senn gengur í garð. 28. desember 2010 12:21 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Sjá meira
Völvan spáir stjórnarslitum, óeirðum og byltingu Upplausn verður við stjórn landsins, ríkisstjórnin springur og einnig sú sem tekur við og bylting verður í þjóðfélaginu, af slíku tagi að búsáhaldabyltingin verður barnaleikur einn í samanburðinum. Þetta segir Völva vikunnar um árið sem senn gengur í garð. 28. desember 2010 12:21