Mansal hefur aukist verulega 11. febrúar 2010 03:45 Fólk á ferli í Hong Kong í Kína í byrjun vikunnar. Nordicphotos/APF
Mansal er vaxandi vandamál í Kína, að því er fram kemur í umfjöllun dagblaðsins South China Morning Post. Ástæðan er í blaðinu rakin til þess að karlar, einkum í sveitum landsins, eigi erfitt með að finna sér eiginkonur, þar sem þær sæki í auknum mæli í þéttbýlið í leit að fjölbreyttari vinnu. Rán á konum mun því orðið útbreitt vandamál. Vinsæl fórnarlömb eru konur frá Burma (Mjanmar) og Víetnam og fátækum héruðum Kína. Konurnar eru svo seldar væntanlegum eiginmönnum. Til marks um eftirspurnina er sagt vera hækkandi verð á eiginkonum, en nú mun hægt að festa kaup á konu fyrir um 38 þúsund júan, eða sem svarar tæpum 700 þúsund íslenskum krónum. Að því er fram kemur í South China Morning Post er vitað um allt að 300 konur sem rænt var í Burma á síðasta ári og seldar voru til Yunnan-héraðs í suðvesturhluta Kína. Fjöldi kvenna sem rænt hefur verið frá landinu er þó talinn mun meiri. Yfivöld í Burma hafa upplýst að á síðustu tveimur árum hafi tæplega 500 konum verið bjargað úr ánauð. Fréttastofa Malasíu greindi frá því í gær að fimm Kínverjar, karl og fjórar konur, hefðu verið handteknir fyrir mansal í Kúala Lúmpúr og 39 ára konu bjargað. - óká
Tengdar fréttir Frances á nýrri plötu Frances Bean Cobain, dóttir Kurts Cobain úr Nirvana og Courtney Love, kemur fram á sinni fyrstu plötu 30. mars. Platan nefnist Evelyn Evelyn frá samnefndri hljómsveit. Frances, sem er átján ára, syngur bakraddir í laginu My Space ásamt hópi þekktra einstaklinga á borð við Weird Al Yankovich, Andrew W.K., Gerard Way úr hljómsveitinni My Chemical Romance og rithöfundinum Neil Gaiman. Á meðal annarra laga á plötunni er ukulele-útgáfa af lagi Joy Division, Love Will Tear Us Apart. 6. febrúar 2010 02:00 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Sjá meira
Frances á nýrri plötu Frances Bean Cobain, dóttir Kurts Cobain úr Nirvana og Courtney Love, kemur fram á sinni fyrstu plötu 30. mars. Platan nefnist Evelyn Evelyn frá samnefndri hljómsveit. Frances, sem er átján ára, syngur bakraddir í laginu My Space ásamt hópi þekktra einstaklinga á borð við Weird Al Yankovich, Andrew W.K., Gerard Way úr hljómsveitinni My Chemical Romance og rithöfundinum Neil Gaiman. Á meðal annarra laga á plötunni er ukulele-útgáfa af lagi Joy Division, Love Will Tear Us Apart. 6. febrúar 2010 02:00