BAFTA: The Hurt Locker rúllaði þessu upp 22. febrúar 2010 08:14 Kathryn Bigelow, sæl og glöð með BAFTA styttuna sína. MYND/AP
Bandaríska stríðsmyndin The Hurt Locker kom sá og sigraði á BAFTA verðlaunahátíðinni sem haldin var í gærkvöldi í London. Verðlaunin eru einskonar bresk útgáfa af Óskarsverðlaununum og líkt og þar á bæ hafði mesta keppnin staðið á milli The Hurt Locker og Avatar en báðar fengu þær átta tilnefningar. Þegar upp var staðið hafði The Hurt Locker fengið sex verðlaun en stórmyndin Avatar sem þegar hefur slegið öll aðsóknarmet, aðeins tvenn, fyrir tæknibrellur og listræna hönnun. Kathryn Bigelow, leikstjóri The Hurt Locker, og fyrrverandi eiginkona James Cameron sem gerði Avatar, hlaut verðlaunin fyrir bestu leikstjórn og er það í fyrsta sinn sem kona hlýtur BAFTA verðlaunin fyrir leikstjórn. Mynd hennar var einnig valin sú besta á hátíðinni auk þess sem hún fékk verðlaun fyrir handrit, klippingu, kvikmyndatöku og hljóð. Þess má geta að íslendingurinn Karl Júlíusson sá um listræna hönnun myndarinnar en hann hefur margsinnis áður unnið með Bigelow. Þau Colin Firth og Carey Mulligan fengu verðlaun fyrir besta leik fyrir myndirnar A Single man og An Education. Mo'nique var valin besta aukaleikonan fyrir hlutverk sitt í Precious og Þjóðverjinn Christoph Waltz kom fáum á óvart þegar hann var valinn besti leikarinn fyrir frammistöðu sína sem SS foringinn Hans Landa í Inglorious Basterds, mynd Quentins Tarantinos.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira