Bandaríkin senda drápssveitir til Yemens Óli Tynes skrifar 27. janúar 2010 11:24 Finna og drepa.
Yemen er að verða eitt af helstu víghreiðrum al-Kaida utan Afganistans og Pakistans. Hryðjuverkasamtökin reka þar þjálfunarbúðir. Nígeríumaður sem reyndu að sprengja bandaríska farþegavél á jóladag fékk þjálfun sína í Yemen. Barack Obama forseti samþykkti fyrir sex vikum að nokkrir tugir sérsveitarmanna yrðu sendir til Yemens til að hjálpa þarlendum að brjóta al-Kaida á bak aftur. Hermennirnir eru úr sveit sem kölluð er Joint Special Operations Command. Aðalhlutverk hennar er að leita uppi og drepa hryðjuverkamenn hvar sem er í heiminum þar með talda bandaríska ríkisborgara. Bandaríska blaðið New York Times segir að síðan hafi tugir al-Kaida liða verið drepnir, þar á meðal sex af fimmtán æðstu foringjum þeirra. Bandaríkjamennirnir taka ekki beinan þátt í árásunum. Þeir hjálpa hinsvegar til við skipulagningu þeirra, leggja á ráðin um aðferðir og leggja til vopn og skotfæri. Þeir hafa aðgang að gervihnöttum rafrænum hlerunum og öðrum hátæknibúnaði. Þeir geta einnig kallað til ómannaðar eftirlitsflugvélar sem eru vopnaðar eldflaugum. Þær geta sveimað klukkustundum saman yfir landinu og fylgst með öllu sem þar gerist með myndavélum og ratsjám sem senda upplýsingar beint í stjórnstöð. Ef þær sjá vænlegt skotmark getur stjórnstöðin látið þær gera eldflaugaárás.
Mest lesið Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Ríkið hætti fjölmiðlaafskiptum Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent Myndband sýnir ferðamenn hætt komna í miklum öldugangi við Reynisfjöru Innlent Myndskeið frá Jökulsárlóni: „Tifandi tímasprengja“ Innlent Fleiri fréttir Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Sjá meira