Hætta í stjórn vegna trúnaðarbrests Elvar Geir Magnússon skrifar 27. ágúst 2010 18:44 Börkur Edvardsson, formaður stjórnar Vals hefur sagt af sér.
Formaður og varaformaður knattspyrnudeildar Vals hafa, ásamt formönnum meistaraflokksráðs og heimaleikjaráðs, látið af stjórnarstörfum fyrir Val. Deilur innan stjórnar og trúnaðarbrestur er ástæða þess að fjórmenningarnir segja af sér. Í yfirlýsingu frá fjórum stjórnarmönnum knattspyrnudeildar Vals, þeim Berki Edvardssyni, Jóni Grétari Jónssyni, Braga G. Bragasyni og Jóni Höskuldssyni, kemur fram að trúnaðarbrestur milli knattspyrnudeildar Vals og aðalstjórnar félagsins sé ástæða þess að þeir segi af sér stjórnarmennsku. Þeir segja jafnframt að innan félagsins hafi margt gengið á, ákveðnir einstaklingar hafi reynt að skemma fyrir störfum þeirra og slík vinnubrögð séu knattspyrnufélaginu Val ekki til framdráttar. Formaður og varaformaður knattspyrnudeildar Vals hafa, ásamt formönnum meistaraflokksráðs og heimaleikjaráðs, látið af stjórnarstörfum fyrir Val. Börkur Edvardsson er því hættur sem formaður knattspyrnudeildar Vals en Friðjón R. Friðjónsson tekur við formennsku af honum. Mikið hefur gustað utan vallar hjá Val að undanförnu eftir fréttaflutning um að staða Gunnlaugs Jónssonar sem þjálfari karlaliðs félagsins væri ekki traust. Yfirlýsing fjórmenninganna rennir stoðum undir það. Í yfirlýsingunni þakka fjórmenningarnir fjölda fólks sem lagt hefur þeim lið en það stingur í augun að Gunnlaugur Jónsson er ekki þar á meðal. „Á þessum tímamótum langar okkur að þakka þeim fjölmörgu Valsmönnum sem hafa starfað með okkur og félaginu að því mikla uppbyggingarferli sem hefur átt sér stað undanfarin ár innan knattspyrnudeildarinnar. Við erum afar stoltir að hafa byggt upp sterkasta meistaraflokk kvenna í sögu félagsins og þökkum bæði fyrrverandi og núverandi þjálfurum þeim, Elísabetu Gunnarsdóttur og Frey Alexanderssyni fyrir frábært samstarf. Við erum einnig þakklátir Willum Þór Þórssyni sem þjálfaði meistaraflokk karla þegar Valur varð bikarmeistari 2005 og Íslandsmeistari 2007. Við þökkum einnig núverandi þjálfarateymum meistaraflokks karla og kvenna fyrir samstarfið, þeim Frey Alexanderssyni, Þórði Jenssyni, Orra Sigurðssyni og Ragnheiði Jónsdóttur hjá kvennaliðinu og þeim James Bett, Friðriki E. Jónssyni, Birni Zoega, Sævari Gunnleifssyni og Halldóri Eyþórssyni hjá karlaliðinu. Að endingu viljum við þakka leikmönnum kvenna- og karlaliðs Vals í knattspyrnu fyrir frábært samstarf og hvetjum liðin áfram til árangurs," segir í yfirlýsingunni. Þar segja fjórmenningarnir jafnframt: „Við erum og verðum alltaf Valsmenn og dyggir stuðningsmenn félagsins. Áfram Valur!"
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Sjá meira