Innlent

Móðir Litháa í mansalsmálinu sannfærð um sakleysi sonar síns

Rasouolé Jasnauskiené.
Rasouolé Jasnauskiené.
Móðir eins af Litháunum sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í fimm mánuði í tengslum við mansalsmálið er sannfærð um sakleysi sonar síns. Hún gangrýnir lögreglu og vonar að sannleikurinn sigri að lokum.

Rasouolé Jasnauskiené hefur búið hér á landi í fjögur ár en Tadas sonur hennar kom hingað fyrir þremur árum, en hann er tuttugu og fjögurra ára gamall. Hún segir hann alltaf hafa verið mikið í íþróttum og hann hafi aldrei reykt, drukkið áfengi né notað eiturlyf.

Tadas er ákærður fyrir mansal en í bréfi sem hann skrifar ásamt öðrum Litháa úr fangelsinu segir hann lögreglu hafa beitt miklum þrýstingi við yfirheyrslur, og gengið hart fram til þess að fá fram játningu.

Rasa er sannfærð um sakleysi sonar síns og segir málið einn stórann misskilning. Aðspurð hvernig Tadas þekki hina Litháana segir hún hann hafa átt fáa vini hér á landi, en hafi kynnst þeim í ræktinni.

"Ég hef mikið rætt við son minn þegar ég hef heimsótt hann. Hann segir stúlkuna sífellt hafa breytt framburði sínum og alltaf komið með eitthvað nýtt. Hún er í raun að ljúga," segir Rasoulé.

Rasa segist hinsvegar ekki geta sagt hversvegna hún ljúgi, en læknar hafi meðal annars staðfest að hún eigi við mikla sálfræðilega erfiðleika að stríða.

"Ég vil að réttlætið nái fram að ganga og allir strákarnir fái að fara heim til fjölskyldna sinna. Ég vil einnig spyrja hvaða ár sé núna? Hversvegna mega sakborningar ekki hitta fjölmiðla og tala við þá. Afhverju er það bannað. Er ekki lýðræði á þessu landi?"

Rasa vonar að sonur sinn verði sýknaður en ef allt fer á versta veg er hún tilbúin til þess að fara með málið til Strassborgar. Hún segist hafa komið hingað til lands í góðri trú og í leit af hamingju, annað hafi hinsvegar komið í ljós.

"Mér líður verr með hverjum deginum og hef lést um mörg kíló. Ég hef mikið hugsað um þetta mál og reynt að komast að niðurstöðu. En ég sé engin endalok í þessu mál."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×