Innlent

Þorsteinn undirbýr þjóðfund og stjórnlagaþing

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Undirbúningsnefnd stjórnlagaþings hefur ráðið Þorstein Fr. Sigurðsson rekstrarhagfræðing sem framkvæmdastjóra nefndarinnar.

Þorsteinn hefur þegar hafið störf. Þorsteinn var í 16 ár framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta. Þorsteinn hefur tvöfalda B.A. gráðu í viðskiptafræðum frá Memphis-háskóla í Memphis í Bandaríkjunum, MIM/MBA gráðu frá Thunderbird - School of Global Management í Phoenix í Bandaríkjunm og meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Framkvæmdastjóri undirbúningsnefndar stjórnlagaþings starfar í umboði nefndarinnar að þeim verkefnum sem nefndinni eru falin. Nefndinni er ætlað að undirbúa stofnun og starfsemi stjórnlagaþingsins, sem kemur saman 15. febrúar 2011, ásamt því að vinna að undirbúningi fyrir þjóðfund sem haldinn verður til undirbúnings fyrir stjórnlagaþingið




Fleiri fréttir

Sjá meira


×