Chelsea og Arsenal bæði með sigurmörk á lokamínútunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2010 15:55 Branislav Ivanovic fagnar hér sigurmarki sínu í dag. Mynd/AP
Chelsea er áfram með fimm stiga forskot á Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 útisigur á Blackburn í dag. Branislav Ivanovic skoraði sigurmark Chelsea sjö mínútum fyrir leikslok en Alexandre Song tryggði Arsenal einnig sigur á West Ham með marki í lokin. Manchester City tapaði hinsvegar fyrir Wolves.Chelsea vann 2-1 útisigur á Blackburn en liðið hafði aðeins fengið eitt stig úr tveimur síðustu útileikjum sínum fyrir þennan leik. Chelsea hefði líka getað tapað stigum á Ewood Park í dag eftir að hafa lent undir og gefið færi á sér í báðum hálfleikjum. Benjani kom Blackburn í 1-0 á 22. mínútu þegar hann hafði betur í loftinu en John Terry og skallaði fyrirgjöf El Hadji Diouf í markið. Blackburn var mun betra liðið á vellinum og hefði átt að vera búið að ná stærri forustu og það kom síðan í bakið á liðinu. Nicolas Anelka jafnaði leikinn sex mínútum fyrir hálfleik eftir að Didier Drogba skallaði fyrir fætur hans fyrirgjöf frá Florent Malouda. Anelka var að skora þarna í 11. sinn í 15 leikjum á móti Blackburn. Jason Roberts fékk frábært færi til að koma Blackburn yfir aftur á 82. mínútu en skaut framhjá markinu og aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Branislav Ivanovic sigurmarkið með skalla eftir sendingu frá Yuri Zhirkov.Arsenal vann 1-0 sigur á West Ham þökk sé sigurmarki Alexandre Song tveimur mínútum fyrir leikslok. Það leit út fyrir að Arsenal-liðinu ætlaði ekki að takast að brjóta niður varnarmúr West Ham en Song hélt uppteknum hætti og skoraði þriðja leikinn í röð. Robert Green varði þrisvar frábærlega frá Arsenal-mönnum í fyrri hálfleiknum, Samir Nasri skaut síðan í slánna úr aukaspyrnu af 35 metra færi á 54. mínútu og Theo Walcott átti skot í stöng aðeins fjórum mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður. Markið lá því loftinu allan leikinn.Úlfarnir unnu 2-1 sigur á Manchester City á Molineux en þetta var annað deildartap City í röð og liðið er nú átta stigum á eftir toppliði Chelsea. Þetta var líka fyrsti sigur Wolves síðan í fyrstu umferðinni 14. ágúst. Emmanuel Adebayor kom Manchester City yfir úr vítaspyrnu eftir að David Silva var felldur en Nenad Milijas jafnaði leikinn sjö mínútum síðar eftir góðan undirbúning frá Christophe Berra. David Edwards skoraði síðan sigurmark Úlfanna á 57. mínútu þegar hann fylgdi vel á eftir þegar Kolo Toure varð á marklínu frá Kevin Doyle.Eiður Smári Guðjohnsen kom ekkert við sögu þegar Stoke tapaði sínum þriðja deildarleik í röð. Everton vann 1-0 sigur í leik liðanna á Goodison Park. Tuncay skoraði mark á 60. mínútu en það var dæmt af þar sem að hann var dæmdur brotlegur. Aiyegbeni Yakubu kom síðan Everton í 1-0 sjö mínútum síðar þegar hann fylgdi á eftir stangarskoti Tim Cahill.Úrslit og markaskorarar íensku úrvalsdeildinni í dag:Arsenal - West Ham 1-0 1-0 Alexandre Song (88.)Blackburn - Chelsea 1-2 1-0 Benjani (22.), 1-1 Nicolas Anelka (39.), 1-2 Branislav Ivanovic (83.)Everton - Stoke 1-0 1-0 Aiyegbeni Yakubu (67.)Fulham - Wigan 2-0 1-0 Clint Dempsey (30.), 2-0 Clint Dempsey (44.),Wolves - Man City 2-1 0-1 Emmanuel Adebayor, víti (23.), 1-1 Nenad Milijas (30.), 2-1 David Edwards (57.)
Mest lesið Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Fleiri fréttir Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Sjá meira