Man. United vann Tottenham og er áfram fimm stigum á eftir Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2010 18:09 Nemanja Vidic fagnar hér sigurmarki sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester United vann 2-0 sigur á Tottenham á Old Trafford í kvöld og komst um leið upp að hlið Arsenal í öðru til þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Nani kom að báðum mörkum United í leiknum, lagði upp það fyrra og skoraði það síðara. Arsenal er með betri markatölu en bæði lið eru áfram fimm stigum á eftir toppliði Chelsea. Staða efstu liðanna breyttist því ekkert frá því fyrir leiki dagsins þar sem öll þrjú efstu liðin unnu sína leiki. Ji-Sung Park var nálægt því að koma Manchester yfir strax á 2. mínútu þegar hann átti skot í stöng af um 23 metra færi. Rafael van der Vaart var einnig mjög nálægt því að skora á 9. mínútu þegar þrumuskot hans af 22 metra færi skall í stönginni. Miðvörðurinn Nemanja Vidic kom Manchester í 1-0 á 30. mínútu með hörkuskalla eftir aukaspyrnu Nani frá hægri. Nani innsiglaði síðan sigur Manchester United með öðru marki með ótrúlegu marki á 84. mínútu. Heurelho Gomes, markvörður Tottenham, lagði boltann frá sér eins og að hann héldi að það væri búið að dæma aukaspyrnu en Nani nýtti sér það, tók boltann og skoraði. Leikmenn Tottenham mótmæltu en í endursýningunni sést að Mark Clattenburg, dómari leiksins, gaf Nani merki um að hann mætti taka boltann. Nani gat skorað þriðja markið undir lokin þegar hann lyfti boltanum yfir Gomes og ofan á slánna.
Mest lesið Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Fleiri fréttir Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Sjá meira