Blatter ætlar ekki að fresta kosningunni um HM 2018 og 2022 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. október 2010 10:00 Sepp Blatter.
Sepp Blatter, forseti FIFA, segir að ekki komi til greina að fresta kosningu framkvæmdastjórnar sambandsins um hvar HM í knattspyrnu muni fara fram 2018 og 2022. Mikið hefur verið rætt um kosninguna eftir að upp komst um að tveir meðlimir framkvæmdastjórnarinnar voru reiðubúnir að selja atkvæði sín. Það var breska dagblaðið The Sunday Times sem uppljóstraði þessu eftir að blaðamaður á þeirra vegum þóttist vera fulltrúi frá Bandaríkjunum og bauð þeim 800 þúsund pund í skiptum fyrir atkvæði þeirra. Bandaríkin og England voru á meðal þeirra þjóða sem lögðu fram boð í keppnirnar tvær. Bandaríkin dró svo tilboð sitt í keppnina sem haldin verður 2018 til baka og í kjölfarið drógu Englendingar boð sitt í 2022-keppnina til baka. Kosningin fer fram þann 2. desember næstkomandi og verður því ekki breytt. Fulltrúunum tveimur, Amod Adamu frá Nígeríu og Reynald Temarii frá Tahiti, hafa verið vikið úr framkvæmdastjórninni. „Það eru fimm vikur í kosninguna og það kom aldrei til greina að breyta neinu," sagði Blatter á blaðamannafundi í dag. „Þetta er óþægileg staða fyrir FIFA en það verður að koma fram að innan sambandsins eru til úrræði sem gerir okkur kleift að bregðast skjótt við svona málum." „Siðanefndin er að takast á við þær ásakanir sem hafa komið fram um mögulega spillingu. Ef þeim sem hefur verið vikið frá fá ekki sæti sín aftur fyrir 2. desember koma ekki aðrir í þeirra stað." Þetta er þó ekki eina vandamálið sem hefur komið upp í aðdraganda kosninganna. Ásakanir hefa komið fram um ólöglegt samráð fulltrúa Spánar og Portúgal (sem bjóða í HM 2018) annars vegar og Katar (sem bjóða í HM 2022) hins vegar. Þá hafa skotin gengið á milli fulltrúa Rússa og Breta undanfarna daga eftir að formaður boðsnefndar Rússa sagði glæpatíðni háa í Lundúnum og að þar væri unglingadrykkja mikið vandamál. Hann sagði svo stuttu síðar að boð Englands væri ekki merkilegt og í raun hálfgert grín. Íþróttamálaráðherra Rússlands baðst svo afsökunar á ummælunum til að lægja öldurnar.Þessir vilja halda HM 2018: England Rússland Spánn/Portúgal Holland/Belgía Þessir vilja halda HM 2022: Ástralía Katar Japan/Suður-Kórea Bandaríkin
Enski boltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Sjá meira