Friðarverðlaunum Nóbels stolið Óli Tynes skrifar 10. nóvember 2010 10:17
Óljóst er hvort hægt verður að afhenda friðarverðlaun Nóbels hinn 10. desember næstkomandi. Afhendingarhátíðin mun engu að síður fara fram í ráðhúsinu í Osló. Vandinn er sá að verðlaunahafinn Liu Xiaobo situr í fangelsi í Kína og verður ekki sleppt þaðan í bráð. Eiginkona hans og lögfræðingur fá heldur ekki fararleyfi. Því gæti verið vandasamt að finna einhvern til þess að taka á móti verðlaununum. Norðmenn vilja fara að öllu með gát við að finna staðgengil því sporin hræða. Árið 1935 voru verðlaunin veitt þýska friðarsinnanum Carl von Ossietzky. Hann sat þá í fangelsi fyrir njósnir og föðurlandssvik. Sök hans var að hafa birt upplýsingar um meint brot Þjóðverja á Versalasamningnum. Þar var greint frá uppbyggingu flughersins sem síðar varð Luftwaffe og því að herflugmenn væru þjálfaðir í Sovétríkjunum.Þar sem Ossietzky átti ekki heimangengt tók lögfræðingur nokkur að sér að veita friðarverðlaununum viðtöku. Hann tók við bæði heiðursskjalinu og peningunum við hátíðlega athöfn. Hann stakk svo af með hvorttveggja og hefur ekki sést síðan.Þess má geta að árið 1990 reyndi dóttir Ossietzkys að fá dóminum um föðurlandssvik hans og njósnir hnekkt. Árið 1992 staðfesti hinsvegar hæstiréttur Þýskalands dóminn. Sá dómur er endanlegur.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Fleiri fréttir Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Sjá meira