Steingrímur Ari: Áminning Álfheiðar stangast á við lög 8. apríl 2010 09:53 Steingrímur Ari Arason og Álfheiður Ingadóttir.
Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, segir að fyrirhuguð áminning heilbrigðisráðherra styðjist hvorki við lög né málefnaleg sjónarmið. Á miðvikudaginn fyrir viku sendi Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra Steingrími Ara bréf þar sem hún tilkynnti honum að hún hyggðist áminna hann fyrir meint brot á almennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna. Málið snýst um reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna tannréttinga og tannviðgerða hjá fólki með fæðingargalla og framkvæmd hennar. Steingrímur Ari hefur sent Álfheiði ítarlegt bréf þar sem hann andmælir fyrirhugaðri áminningu. „Af umfjöllun minni um málefnaleg sjónarmið má ráða að ekki einasta byggir fyrirhuguð áminning ekki á málefnalegum sjónarmiðum heldur er hún til þess fallin að ganga gegn markmiðum starfsmannalaga og brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti mínum til tjáningar," segir Steingrímur meðal annars í bréfinu. Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, hefur gagnrýnt ákvörðun Álfheiður. Að hans mati er með öllu ólíðandi ef stjórnendur ríkisstofnana geta átt á hættu að vera sakaðir um að hafa brotið gegn góðum starfsháttum og hollustu og trúnaðarskyldum sínum með því einu að leita ráða hjá Ríkisendurskoðun um fjárreiðutengd málefni.
Tengdar fréttir Segir reglugerðina vera fordæmalausa „Hér með tilkynnist þér að ráðgert er að áminna þig fyrir brot á almennum starfskyldum ríkisstarfsmanna…“ Þannig hefst bréf sem Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra sendi Steingrími Ara Arasyni, forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, í síðustu viku. Ástæðan er erindi Steingríms til Ríkisendurskoðunar, án vitundar ráðherrans. 6. apríl 2010 03:15 Ráðherra áminnir forstjóra Sjúkratrygginga Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur í hyggju að áminna Steingrím Ara Arason forstjóra Sjúkratrygginga Íslands fyrir brot á almennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisisins. Forsaga málsins er sú að Steingrímur leitaði til ríkisendurskoðanda í kjölfar þess að ráðherra setti reglugerð um þáttöku sjúkratrygginga í tannlækninga- og tannréttingakostnaði. 3. apríl 2010 13:51 Ríkisendurskoðandi: Bréf Álfheiðar ólíðandi Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, segir með öllu ólíðandi að stjórnendur ríkisstofnanna geti átt á hættu að vera sakaðir um að hafa brotið gegn góðum starfsháttum og hollustu- og trúnaðarskyldum sínum með því einu að leita ráða hjá Ríkisendurskoðun um fjárreiðutengd málefni. Þar vísar Sveinn til bréfs sem Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, sendi Steingrími Ara Arasyni forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, fyrir brot á almennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna. 7. apríl 2010 10:35 Álfheiður: Bréf Ríkisendurskoðenda byggt á misskilningi Ríkisendurskoðandi segir með öllu ólíðandi að stjórnendur ríkisstofnana geti átt á hættu að vera sakaðir um að brjóta gegn góðum starfsháttum og hollustu og trúnaðarskyldum, leiti þeir ráða hjá Ríkisendurskoðun. Hann gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð heilbrigðisráðherra sem hefur tilkynnt að hann muni áminna forstjóra Sjúkratrygginga Íslands. Heilbrigðisráðherra segir bréfið byggt á misskilningi. 7. apríl 2010 12:22 Tjá sig ekki um mál Steingríms Ara Heilbrigðisráðuneytið og Álfheiður Ingadóttir ráðherra ætla ekki að tjá sig um mál Steingríms Ara Arasona forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, en Steingrímur skýrði frá því fyrr í dag að ráðherra ætli að áminna hann. „Heilbrigðisráðuneytið mun ekki tjá sig frekar um samskipti við forstjóra Sjúkratrygginga Íslands í þessu máli á vettvangi fjölmiðla,“ segir í tilkynningu. Þá er bent á að Steingrímur hafi lögformlegan andmælarétt til 13. apríl næstkomandi og er málið nú í þeim farvegi. 3. apríl 2010 16:22 Mest lesið Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Innlent Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Innlent Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Innlent Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Erlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Innlent Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Sjá meira
Segir reglugerðina vera fordæmalausa „Hér með tilkynnist þér að ráðgert er að áminna þig fyrir brot á almennum starfskyldum ríkisstarfsmanna…“ Þannig hefst bréf sem Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra sendi Steingrími Ara Arasyni, forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, í síðustu viku. Ástæðan er erindi Steingríms til Ríkisendurskoðunar, án vitundar ráðherrans. 6. apríl 2010 03:15
Ráðherra áminnir forstjóra Sjúkratrygginga Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur í hyggju að áminna Steingrím Ara Arason forstjóra Sjúkratrygginga Íslands fyrir brot á almennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisisins. Forsaga málsins er sú að Steingrímur leitaði til ríkisendurskoðanda í kjölfar þess að ráðherra setti reglugerð um þáttöku sjúkratrygginga í tannlækninga- og tannréttingakostnaði. 3. apríl 2010 13:51
Ríkisendurskoðandi: Bréf Álfheiðar ólíðandi Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, segir með öllu ólíðandi að stjórnendur ríkisstofnanna geti átt á hættu að vera sakaðir um að hafa brotið gegn góðum starfsháttum og hollustu- og trúnaðarskyldum sínum með því einu að leita ráða hjá Ríkisendurskoðun um fjárreiðutengd málefni. Þar vísar Sveinn til bréfs sem Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, sendi Steingrími Ara Arasyni forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, fyrir brot á almennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna. 7. apríl 2010 10:35
Álfheiður: Bréf Ríkisendurskoðenda byggt á misskilningi Ríkisendurskoðandi segir með öllu ólíðandi að stjórnendur ríkisstofnana geti átt á hættu að vera sakaðir um að brjóta gegn góðum starfsháttum og hollustu og trúnaðarskyldum, leiti þeir ráða hjá Ríkisendurskoðun. Hann gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð heilbrigðisráðherra sem hefur tilkynnt að hann muni áminna forstjóra Sjúkratrygginga Íslands. Heilbrigðisráðherra segir bréfið byggt á misskilningi. 7. apríl 2010 12:22
Tjá sig ekki um mál Steingríms Ara Heilbrigðisráðuneytið og Álfheiður Ingadóttir ráðherra ætla ekki að tjá sig um mál Steingríms Ara Arasona forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, en Steingrímur skýrði frá því fyrr í dag að ráðherra ætli að áminna hann. „Heilbrigðisráðuneytið mun ekki tjá sig frekar um samskipti við forstjóra Sjúkratrygginga Íslands í þessu máli á vettvangi fjölmiðla,“ segir í tilkynningu. Þá er bent á að Steingrímur hafi lögformlegan andmælarétt til 13. apríl næstkomandi og er málið nú í þeim farvegi. 3. apríl 2010 16:22