Ráðherra áminnir forstjóra Sjúkratrygginga 3. apríl 2010 13:51
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur í hyggju að áminna Steingrím Ara Arason forstjóra Sjúkratrygginga Íslands fyrir brot á almennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisisins. Forsaga málsins er sú að Steingrímur leitaði til ríkisendurskoðanda í kjölfar þess að ráðherra setti reglugerð um þáttöku sjúkratrygginga í tannlækninga- og tannréttingakostnaði. Í bréfi til Steingríms segist ráðherra telja að honum hefði borið að leita fyrst til ráðuneytis eða ráðherra. „Með því að leita ekki beint til ráðuneytisins hafir þú brotið gegn góðum starfsháttum og hollustu- og trúnaðarskyldum þínum," segir ráðherra meðal annars. Í bréfinu er Steingrími veittur kostur til andmæla til og með 13. apríl næstkomandi og nú hefur hann sent ráðherra bréf sem hann sendir einnig á fjölmiðla. Þar segir Steingrímur að bréf ráðherra hafi komið sér í opna skjöldu „og það leið nokkur tími þar til ég áttaði meig á alvarleika bréfsins," segir hann. Steingrímur bætir því við að nokkrar spurningar hafi í framhaldinu vaknað og setur hann þær fram í bréfinu. Steingrímur Ari Arason Ætlar áfram að leita sér ráða Steingrímur spyr ráðherra meðal annars hvort það geti verið að hann, sem forstjóri, hafi brotið af sér með því að leita ráða hjá ríkisendurskoðanda. Hann spyr ennfremur hvort það geti verið að ef hann leiti á ný ríkisendurskoðanda út af sama máli þá beri ráðherra að veita honum lausn frá starfi. Ennfremur spyr Steingrímur hvernig hann geti starfað sem forstjóri stofnunar með rúmlega 100 starfsmenn eftir að ráðherra hefur staðfest trúnaðarbrest bréflega. Steingrímur spyr fjölda annarra spurninga í bréfinu en í niðurlagi þess segir: „Eftir sem áður er það niðurstaða min að ég eigi engan annan kost en að leita mér ráða hjá mér reyndari mönnum, opinbera áform ráðherra svo og þetta bréf og vinna síðan málið áfram fyrir opnum tjöldum. Einungis þannig geti ég sýnt þér og embætti þínu lögboðna hollustu og trúnað. Annað séu ekki góðir starfshættir."
Mest lesið Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Erlent Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Innlent Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Erlent Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Erlent Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Innlent Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Innlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Innlent Hefur leit að nýjum saksóknara Innlent Fleiri fréttir Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Þref á þingi og ráðherra vill bregðast við hækkandi raforkuverði Björgunarsveitir leita Sigríðar áfram Sjá meira